Skinfaxi - 01.10.1985, Side 31
Sund í Neskccupstaö
íþróttafélagið Þróttur í Nes-
kaupstað var stofnað fyrir 62 ár-
um og hefur starfað nær óslitið
síðan ef undan eru skilin 4—5 ár
frá 1928 til 1933, en þá var lítið
sem ekkert starfað. Oft hefur ver-
ið mjög öflugt íþróttalíf í Þrótti
og Þróttarar jafnvel skipað sér í
raðir bestu íþróttamanna lands-
ins, og nægir þar að minnast á
gullaldarárin okkar í sundi sem
voru á milli ’48 og ’58. Þá naut
sundlaugin affallsvatns frá disel-
rafstöð bæjarins og var opin í átta
til níu mánuði á ári. Nú er öldin
önnur, búið að virkja í fjórðungn-
um og ekkert affallsvatn að fá,
sundlaugin hituð upp með svart-
olíu og aðeins opin í um fimm
mán. á ári. Reglulegar sund-
æfingar eru ca. fjóra mánuði og
útkoman því miður eftir því.
Þrátt fyrir allt lítur sunddeild
Þróttar björtum augum á fram-
tiðina og starfar af krafti þennan
stutta tíma sem hægt er að synda.
Eitt af mörgu skemmtilegu sem
gert var i sumar var að heimsækja
Baksund stúlkna aö hefjast.
SKINFAXI
Hópurinn er fór frá Þrótti til Akureyrar á mótiö.
sundf. Óðinn á Akureyri, og taka
þátt i opnu sundmóti Óðins.
Sameinuð var þar skemmti- og
keppnisferð og varð þar svo sann-
arlega enginn fyrir vonbrigðum.
Tuttugu og þrjú ungmenni
tóku þátt í ferðinni auk farar-
stjórn og þjálfara. Norðanmenn
tóku mjög vel á móti okkur og
dvöldu við þar i góðu yfirlæti frá
föstud. framá mánud., helgina
23.—26. ágúst. Eftir sundmótið
sem stóð yfir laugardag, sunnu-
dag, var öllum boðið í skógarferð
út með firðinum í skemmtilegt
sumarhús og var þar haldin
pylsu-, gos- og kaffiveisla, verð-
launum úthlutað og mikið sung-
ið. Sunddeild Þróttar vill nota
tækifærið um leið og við sendum
Skinfaxa þennan pistil með
myndum frá ferðinni að, þakka
þeim norðanmönnum góðar
móttökur og góða kynningu í von
um frekari samskipti siðar.
Már Sv.