Skinfaxi - 01.04.1988, Side 5
Nú er sumarstarfið í undirbúningi hjá félögum
og samböndum. Starf sem snýst mikið um
knattspymu og frjálsar íþróttir. En sumarið
kemur einnig til með að mótast mjög af
Olympíuleikunum sem eru framundan, í Seoul í
haust. Þó handknattleiksvertíðinni sé nú lokið er
henni ekki lokið hjá handboltalandsliðinu sem
nú er að hefja lokaundirbúninginn.
Knattspyrnumenn fara ekki á Olympíuleikana
en knattspyrnuvertíðin verður án efa
skemmtileg. Augu fjölmiðlanna beinast fyrst og
fremst að 1. deild karla. Þar er nú komin ný stærð
í spilið. Leiknir frá Ólafsfirði. Þeir eiga eflaust
eftir að setja mörg strik í reikninginn hjá hinum
gömlu og grónu 1. deildar félögum. En spennan
er ekki síðri í öðrum deildum, í öðrum flokkum.
Ut um allt land er knattspyrnuliðið alltaf að verða
mikilvægari þáttur í bæjarbragnum. Þetta birtist
í fjölmiðlum þegar Leiknir lék síðastliðið haust
til úrslita um sæti í 1. deild að ári. Leiknir kom
suður í úrslitaleikinn og hálfur bærinn með.
Á sama hátt má tala um körfuboltann.
Toppurinn á
ísjakanum
Keflvíkingar, Njarðvíkingar, Grindvíkingar og
nú Sauðrkróksbúar eru allrir stoltir af sínu fólki
og framgangi þess í körfunni.
Annars er það alltaf jafn forvitnilegt hvað birtist
í fjölmiðlum af íþróttafólki og af hverju það
birtist. Það hefur til að mynda ekki farið mikið
fyrir Bjarka Arnórssyni í fjölmiðlum,
Evrópumeistara unglinga í siglingum á Topper
bát. Þó er þetta eini Evrópumeistarinn sem við
íslendingar getum státað af. En Bjarki er ekki
einn af þeim sem eru að trana sér fram. Það er oft
það sem gildir til að ná athyglinni.
Það hefur heldur ekki farið mikið fyrir Akureyri
sem sérstökum knattspyrnubæ. Akranes er
knattspymubær. En þegar farið er að skoða aðra
en meistaraflokkinn hjá Þór og KA kemur í Ijós
að Akureyrarbúar geta verið stoltir af sínu
knattspymuliðum. I grein Sigurðar Þorsteins-
sonar í Skinfaxa að þessu sinni kemur Akureyri
mjög vel út. Já, það er bara toppurinn af
ísjakanum sem birtist í fjölmiðlum, Skinfaxi er
þar með talinn!
Ingólfur Hjörleifsson
Útgefandi: Ungmennafélag íslands. - Ritstjórklngólfur Hjörleifsson. - Ábyrgðarmaður: Pálmi
Gíslason. - Stjórn UMFÍ: Pálmi Gíslason, formaður, Þórir Haraldsson, varaformaður, Þórir Jónsson,
gjaldkeri, Guðmundur H. Sigurðsson, ritari. Meðstjórnendur:Dóra Gunnarsdóttir, Kristján Yngvason,
Sigurbjörn Gunnarsson. Varastjóm: Magndís Alexandersdóttir, Hafsteinn Pálssson, Matthías
Lýðsson, Sæmundur Runólfsson. - AfgreiðslaSkinfaxa: Öldugata 14, Reykjavík, S:91-12546 - Setning
og umbrot: Skrifstofa UMFÍ. - Prentun: Prentsmiðjan Oddi. - Pökkun: Vinnustofan Ás.
Allar aðsendar greinar er birtast undir nafni eru á ábyrgð höfunda sjálfra og túlka ekki stefnu né skoðanir
blaðsins eða stjórnar UMFI.
Skinfaxi
5