Skinfaxi - 01.04.1988, Síða 6
Molar
UMG eða Ungmennafélag Grafarvogs hefur verið stofnað í sam-
nefndu hverfi í Reykjavík eins og sagt var frá á þessum síðum í síðasta
tölublaði Skinfaxa. Geysilegurkrafturvirðistveraíþessufélagiáfyrstu
mánuðum þess. Margt og mikið er fyrirhugað og er hér nokkuð af því.
Jóhannes Bárðarson, fyrrverandi knattspymumaður úr Víkingi og nú
íbúi í Grafarvogi hefur ásamt Sigurði Þorsteinssyni tekið að sér þjálfun
4., 5. og 6. flokks UMG til að byrja með. Nú stendur yfir innritun á
æfingar og gert er ráð fyrir að fyrir að þær hefjist nú í apríl eða maí.
Ráðgert er að UMG taki þátt í Tommamóti í Knattspyrnu en frekari mót
verða látin bíða þar til á næsta ári. Enn er nokkuð óljóst með frjálsar
íþróttir en stefnt er að því að fá leiðbeinanda fyrir vorið þar sem ljóst er
að mikill áhugi er fyrir þeim í Grafarvogi. Aðstaðan er svo til engin eins
og er en það verður ekki lengi. Bráðabirgðargrasvelli verður komið upp
fyrir vorið, fyrir fótboltann og frjálsar. Þá er stefnt á malarvöll í fullri
stærð fyrir þar næsta vor. Það vor er einnig stefnt á fulla þátttöku í öllum
mótum í fyrrnefndum flokkum í knattspyrnu. Hvað frjálsar íþróttir
varðar verður til að byrja með fengin aðstaða fyrir eldri krakka í
Laugardal. Ekki hefur verið tekin nein ákvörðun enn með þátttöku í
mótum í frjálsum...
Grafarvogsmenn segj ast leggj a mikla áhersl u á tvíhliða þátttöku
íbúa í íþróttum. Annars vegar eru keppnisíþróttir sem þegar hafa verið
nefndar. Hins vegar eru almenningsíþróttir. Þar verður fljótlega farið af
stað eins og aðstæður leyfa. Þar er auðvitað fyrst og fremst um að ræða
skokk í formi hlaupa. Þann 1. maí næstkomandi er fyrirhugað svonefnt
Hverfisskokk og er stefnt að því að gera það að árvissum viðburði í
hverfinu. Þar verður einstaklingum jafnt sem fjölskyldum boðin
þátttaka. Auk þess sem þegar hefur verið nefnt er mikið af hugmyndum
í gangi um starf félagsins sem greint verður frá síðar. Geysileg
uppbygging á sér nú stað í Grafarvogi. Allar lóðir hafa nú verið seldar
á svæðinu og búa þar nú um 2500 til 3000 manns. Á næstu 4 til 5 árum
er hins gert ráð fyrir að íbúatalan verði komin í um 7 til 8000 manns. Af
þessu má ljóst vera að nauðsyn og möguleikar á ungmenna- og almennu
félagsstarfi eru geysilegir...
Landsmót umfí hafa
mörg hver varðveist á “lifandi
myndum”, eins og sagt er um
kvikmyndafilmur og mynd-
bönd. Þettaáalvegjafntviðum
Landsmótið fræga á Ilúsavík
síðastliðið sumar. BjarniFelix-
son hjá “sjónvarpi allra lands-
manna” hefur undanfarið unnið
að því að klippa saman efni frá
mótinu. Og þetta efni verður í
hvorki meira né minna en
þremur hlutum, 45 mínútur
hverhluti. Fjórði hlutinn er svo
auðvitað Víkingaleikarnir.
Fyrsti hlutinn er opnunar-
athöfnin eins og hún leggur sig.
Bjami Felixsson sagði í samtali
við Skinfaxa að þessi mynd-
bönd væru kannski ekki
heildstæð mynd með upphafi
og endi, skipuleg heimildar-
mynd. Hann sagðist hafa farið
af stað með þá hugmynd í
upphafi en síðan ákveðið að
safna saman mest öllu efninu á
endanlega spólu. Hann sagðist
telja að þeir sem fá þessa mynd
myndu mikið frekar vilja það
en einhverja afmarkaða búta frá
mótinu. UMFÍ og HSÞ fá 35
eintök af þessum myndböndum
og verður þeim dreift til
aðildarsambanda og félaga sem
aðild eiga að UMFÍ. í fram-
haldi af þessu má segja frá því
að ætlunin er að færa yfir á
myndbönd það efni sem til er
um eldri Landsmót hjá UMFÍ
og öðrum aðilum. Þarna er um
að ræða svo til öll Landsmótin
frá því árið 1943 á Hvanneyri.
Gestum í Vesturhlíð gefst nú
kostur á að skoða það og fleira
er sem sagt á leiðinni...
6
Skinfaxi