Skinfaxi - 01.04.1988, Page 7
Molar
Arið 1988 má sjálfsagt nefna ár stórafmæla innan ungmennafélags-
hreyfingarinnar. Ekki er alveg ljóst enn hversu mörg ungmennafélög
eiga 50 ára afmæli eða meira í ár en þau eru að minnsta kosti 30, ef ekki
fleiri. Fólki til glöggvunar birtum við hér lista yfir afmæli þau sem við
vitum af og væri það vel þegið ef félög vildu láta vita um nákvæman
stofndag sinna félaga til þjónustumiðstöðvarinnar á Öldugötu 14 í
Reykjavík.
50 ára afmæli:
26. maí Umf. Kjalnesinga UMSK
22. okt Umf. Snæfell HSH
27. nóv Umf. Vísir UÍÓ
60 ára afmæli:
22. jan Umf. Merkihvoll HSK
24. júlí Umf. Súlan UÍÁ
17. nóv Umf. Baldur, Hvolhreppi HSK
22. des Sundfélagið Grettir HSS
65 ára afmæli:
28. jan Umf. Afturelding UNÞ
11. mars Umf. Trausti HSK
10. sept íþróttafélagið Próttur UÍA
70 ára afmæli:
3. mars Umf. Ársól UMSE
25. aprfl Umf. Von UMSS
75 ára afmæli:
24. ágúst Umf. Dagsbrún HSK
80 ára afmæli:
4. feb Umf. Eyrabakka HSK
5. mars Umf. Laugdæla HSK
15. mars Umf. Stokkseyrar HSK
22. mars Umf. Vorblóm HVÍ
17. aprfl Umf. Hrunamanna HSK
23. aprfl Umf. Biskupstungna HSK
23. aprfl Umf. Reykdæla UMSB
24. maí Umf. Skeiðamanna HSK
28. maí Umf. Hegri UMSS
7. júní Umf. Samhygð HSK
8.júní Umf. Baldur, Hraungerðishreppi HSK
8.júní Umf. Brúin UMSB
14.júní Umf. Geisli HSÞ
2. ágúst Umf. Ingólfur HSK
4. okt Umf. Bjarmi HSÞ
8. nóv Umf. Meðallendinga USVS
9. nóv Umf. Önundur HVÍ
6. des Umf. Öxfirðinga UNÞ
85 ára afmæli:
31. maí Umf. Æskan UMSE
Skinfaxalesendur muna
sjálfsagt eftir Ceciliu Lundholm
sem verið hefur hér á landi undan-
farið ár fyrir tilstuðlan ungmenna-
samskipta systursamtaka UMFÍ á
Norðurlöndum. Cecilia er sænsk
og hefur líkað einstaklega vel hér á
landi. Lengi dvaldist hún á bænum
Dæli í Svarfaðardal. Nú er hún
komin á Höfn í Hornafirði og er
kokkur á bátnum Þinganesi. Hvað
um það, nú er væntanleg önnur
stúlka frá Svíþjóð, með sama hætti
og Cecilia kom hingað síðasta
sumar. Sú heitir Ann Marie
Johansson. Ann Marie er 22 ára og
er frá bænum Harnösand sem er
skammt frá Umea í Norður-Sví-
þjóð. Hún hefur lokið stúdents-
prófi og hefur hug á skoða sig um í
heiminum áður en hún heldur
áfram í námi. Ann Marie hefur
kynnt sér íslendingasögurnar og
hefur hrifist af því sem hún hefur
séð af íslenskri náttúru í gegnum
fjölmiðla í Svíþjóð. Hún er mikil
áhugamanneskja um trjárækt,
hefur auk þess áhuga á hestum og
vill gjarna kynnast íslenska
hestinum. Ann Marie hefur tekið
þátt í leiklistarstarfssemi 4 H
klúbbanna í Svíþjóð og hefur
áhuga á að kynnast íslensku
samfélagi og náttúru. Eins og var
Skinfaxi
7