Skinfaxi - 01.04.1988, Side 8
Molar
með Ceciliu mun Ann Marie
Johanssen búa sem einn af
fjölskyldunni...
Skátar og ungmennafélagar
hafa tekið höndum saman í
ungmennafélaginu Drangi í Vík í
Mýrdal. Þetta gerðist á aðalfundi
Ungmennafélagsins Drangs sem
haldinn var í Vík þann 31. mars
síðastliðinn með því að stofnuð var
sérstök skátadeild. Forsagan að
þessu er sú að presturinn í Vík, séra
Haraldur M. Kristjánsson sem
verður sveitarforingi í
skátadeildinni, hafði verið með
fjölmargt ungt fólk í félagsstarfi
innan kirkjunnar á staðnum.
Ahugi var fyrir því að stofna
skátafélag. Haraldur kom þá með
þá hugmynd að stofnuð yrði
skátadeild innan Drangs til að
dreifa kröftunum ekki um of og
nýta vetrartímann þegar lítið er um
að vera hjá ungmennafélaginu.
Þeirri hugmynd var vel tekið og nú
sinnir Ungmennafélagið Drangur
einnig skátastarfi, fyrir fólk í 7. -.
9.bekk grunnskólans...
Enn eitt ungmennafélagið hefur
verið stofnað, nú í höfuðstað
Norðurlands, Akureyri og nefnist
Ungmennafélag Akureyrar. Hið
nýja félag mun til að byrja með
fyrst og fremst snúast um frjáls-
íþróttastarf sem lítið hefur verið
sinntþaríbæundanfarið. Þarerþó
fjölmennt lið góðs frjálsíþróttaliðs
sem endurspeglast kannski í því að
formaður þess er hlauparinn
Sigurður P. Sigmundsson. Meiraí
næsta blaði af UMFA...
Jóhanna Leopoldsdóttirerein afþeimfélagsmálakennurum sem nú
fer um landið og heldur félagsmálanámskeið samkvæmt pöntun félaga
og sambanda. í febrúar og mars gerði Jóhanna víðreist og hélt námskeið
með u.þ.b. 140 manns. Námskeiðin voru á Norðurlandi eystra og í
Dölunum á Vesturlandi. Það sem er óvenjulegt við þessi námskeið
Jóhönnu er að hún hélt félagsmálanámskeið fyrir börn í eldri bekkjum
grunnskóla, samtals fyrir um 80 krakka. Jóhanna sagðist hafa haft
óskaplega gaman af þessu. Hún renndi nokkuð blint í sjóinn með
námskeið fyrir yngra fólkið og sagðist hafa blandað þetta nokkuð
leikjum til að halda athygli þess. Það gekk vonum framar og kannski,
eftir 10 ár, verða þama komnir félagsmálaleiðtogar sem Jóhanna kveikti
í hinn rétta neista...
Eitt er nokkuð víst íþessum heimi. Hin mikla nútímatækni dregur ekki
úr hættunni á að mistök eigi sér stað. Því mun mannleg viska ætíð
stjórna. Og ekki var viska ritstjóra þessa blaðs nægilega vel á verði við
frágang Afrekaskrár UMFÍ 1987 sem birtist í síðasta tölublaði Skinfaxa.
Listinn yfir bestu tíma í 100 metra hlaupi kvenna á síðasta ári var ekki
nákvæmur og birtist því hér með réttur (Staða yfir landið allt í sviga):
Svanhildur Kristjónsdóttir UMSK 11.97 (1)
Guðrún Arnardóttir UMSK 12.44 (4)
Ingibjörg Ivarsdóttir HSK 12.81 (7)
Berglind Bjamadóttir UMSS 12.83 (9)
Helga Magnúsdóttir UÍA 12.90 (13-14)
Þórdís Gísladóttir HSK 12.90 (13-14)
Ágústa Pálsdóttir HSÞ 12.8 (15)
Birgitta Guðjónsdóttir HSK 13.04 (16)
Þá skal tími Berglindar Erlendsdóttur, UMSK vera 26.9 í stað 2609. í
200m. Ekki er allt búið enn. Tími Hannesar Hrafnkelssonar varrangur.
Hann var sagður hafa hlaupið á 1.51.1. Besti tími Hannesar á síðasta ári
var 1.59.1. Á listanum yfir besta árangur í 3000 m. hlaupi féll út besti
tími Daníels S. Guðmundssonar, USAH. Hans besti tími ásíðastaári var
8:53.0. Leiðréttist þetta allt hér með og er beðist velvirðingar á þessum
mistökum. Þau skrifast á undirritaðan. IH
8
Skinfaxi