Skinfaxi - 01.04.1988, Blaðsíða 13
Knattspyrna
Úr leik Þórs og Víðis í 1. deildinni í fyrra.
félagsins sýndi sterkan karakter í síðasta
íslandsmóti, en félagið hefur mátt sjá á
bak lykilleikmönnum. Misjafnir yngri
flokkar ættu að vera félaginu alvarlegt
umhugsunarefni og sú félagslega hefð
sem ríkti á Hlíðarenda virðist vera að
daprast. Á henni hefur félagið hins vegar
unnið sína sætustu sigra. Aðstaðan fer
batnandi en árangur gæti orðið misjafn ef
félagsleg uppbygging fylgir ekki með.
íþróttabandalag Akranes nær fjórða
sæti. Félagið hefur náð ótrúlega góðum
árangri, þrátt fyrir að félagið hafi orðið
fyrir mikilli blóðtöku í meistaraflokki.
Annar og þriðji flokkur félagsins voru
ekki mjög sterkir síðastliðið ár cn yngstu
fiokkamir eru í fremstu röð. Styrkur
grunnur félagsins hefur komið í ljós
síðustu ár. Aðstaðan á Skaganum er að
verða ein sú allra besta hérlendis. í A er að
verða fyrirmynd annarra félaga í
uppbyggingu og rekstri á íþróttaaðstöðu.
Víkingar, nýliðarnir í 1 deild, koma
eflaust mörgum á óvart með að lenda í 5.
sæti en þegar betur er að gáð hafa
Víkingar haldiðþessu sæti síðastliðin þrjú
ár.
KA og Fram í úrslitum 3. tlokks í
fyrra.
Á sama tíma og gcngi meislarafiokks
hefur verið misjafnt, hefur mikil og góð
uppbygging átt sér stað í yngri
fiokkunum. Veikleiki félagsins hefur
verið fyrst og fremst félagslegur, en á því
sviði hefur orðið vcruleg framþróun. Það
kæmi mér ekki á óvart að Víkingar yrðu í
fremstu röð næstu árin.
Knattspyrnubærinn
Akureyri
í 6. og 7. sæti eru Akureyrarliðin, Þór
og KA. Þó verður að geta þess að þær
forsendur sem stigin eru reiknuð út frá eru
félögunum ef til vill óhagstæðar.
Frammistaða félaganna er ekki síður
athyglisverð fyrir þær sakir að þau koma
úr sama bæjarfélagi, sem er á stærð við
Kópavog og Hafnarfjörð, sem eiga þó
ekkert 1. deildarfélag. Það er því með
sanni hægt að segja að Akureyri sé
knattspyrnubær, en það viðurncfni hefur
Akranes einna helst haft. Þegar tillit er
tekið til annarra íþóttagreina, er Akureyri
sennilega í fararbroddi hvað
íþróttaárangur snertir.
í 8. sæti kemur Týr frá Vestmanna-
eyjum, en þegar árangur þeirra er metinn
er tekið tillit til árangurs meistara- og 2.
fiokks ÍBV. S taða Týs hefur farið stöðugt
batnandi undanfarin ár. Yngri fiokkamir
hafa vakið verðskuldaða athygli fyrir vel
þjálfuð lið. Þór er í 14. sæti og það hlýtur
Skinfaxi
13