Skinfaxi - 01.04.1988, Side 14
Knattspyrna
að vera Vestmannaeyingum umhugsun-
arefni, að þrátt fyrir frambærilega yngri
flokka ná eldri flokkarnir ekki
sambærilegum árangri. Lítið fer fyrir
hinu sterka vilja sem einkenndi ÍBV liðið
fyrir nokkrum árum.
í 9. og 10. sæti eru ÍBK og UBK sem
bæði hafa hcldur sigið niður töfluna
síðastliðin þrjú ár. Það einkennir einnig
fclögin að “gat” virðist hafa myndast í
uppbyggingunni. ÍBK hefur enn sterkari
meistaraflokk cn næstu 5 til 6 árin hljóta
að vera forystumönnum félagsins
áhyggjuefni. Frábær árangur 5. flokks
síðastliðið ár er þó nokkur sárabót. Gatið
hjá UBK er þrjú ár og það dapurlega er að
það kemur í kjölfar besta árangurs
félagsins árið 1974. Yngstu flokkamir
cru nú hins vegar í fremstu röð.
Það er athyglisvert að af 10 fyrstu deild-
ar félögunum eru 8 á þessum lista yfir
bestu félögin. Þannig að samfylgnin er
talsverð. Aðeins Völsungur og Leiftur ná
ckki á “topp 10.” Völsungur er þó á
uppleið en vantar 2. flokk.
Leiftur sem óvænt kom upp í 1. deildina
í fyrra er í 38. sæti og cr aðeins með einn
Sokkar! Sok] n • m
Víkurprión l lif.
er eini íslenski framleiðandinn á
knattspymusokkum!
Stöndumst allan samanburð í
verði og gæðum!
Dreifingaraðili: Henson hf. S: 91-31515
yngri flokk, 4, flokk, á íslandsmótinu.
Árangur meistaraflokksins byggist upp á
samstilltum hóp en þeir þurfa að byggja
upp yngri flokka ef félagið ætlar sér
stöðugleika í framtíðinni. Reynsla annara
félaga með sambærilega þróun ætti að
kenna þeim að byggja ekki um of á
aðfengnum leikmönnum. Félög eins og
ÍBÍ, Haukar, Skallagrímur og Austri
mega muna fífil sinn fegurri.
Félög á uppleið
Þau félög sem eru á mestri uppleið eru
Stjaman, ÍR, Völsungur og Tindastól 1. Þá
má einnig nefna félög eins og Fylki og
Leikni í Breiðholti. Stjaman er á
talsverðri siglingu upp stigann, en hversu
fljótt uppbyggingin skilar sér, á eftir að
koma í ljós. ÍR hefur gengið vel, og virðist
eiga mikla möguleika. Þó má búast við
harðri baráttu í 2 dcildinni í sumar, ekki
síst vegna reynsluleysis. Þá er árangur
Völsungs athyglisverður, og Tindastóll
gæti hæglega orðið eitt af stórveldunum í
knattspymunni með sérlega athyglis-
verða þróun. ÍK og Selfoss falla nokkuð
niður síðastliðið ár. Helsta ástæða þess er
að félögin drógu tvo flokka úr keppni á
síðasta ári, það er veikleikamerki. En
bæði félögin hafa hins vegar verið á up-
pleið síðastliðin ár.
Þegar listinn er skoðaður kemur í ljós,
að hægt er að lesa ákveðna þróun út úr
honum. Greinilegast erað félög sem ekki
fylgja styrkleika meistaraflokkanna eftir
með góðu unglingastarfi, ná ekki árangri
þegar lil lengri tíma er litið. Vissulega
kemur það til að byggðarlög eru
misjafnlegastór. Víðaert.d. ekkihægtað
taka þátt í íslandsmóti yngri flokka vegna
fólksfæðar. Ef til vill væri athugandi að
leita annarra leiða í þeim tilfcllum.
Þannig væri hugsanlegt að leika í minni
knattspymu í 2. aldursflokki, t.d. á
Austfjörðum, þar sem enginn 2. flokkur
tekur þátt í íslandsmóti 1988.
Það má vissulega deila um forsendur
þessa lista en hann er fyrst og fremst settur
fram til gamans og sem tilraun til að meta
hlutlægt stöðu félaganna. Þá væri einnig
athugandi að taka inn kvennaknatt-
spymuna en á því eru vissir annmarkar.
14
Skinfaxi