Skinfaxi - 01.04.1988, Page 19
Skokk
aldri.”
-Hvernig heldurðu að þetta sé í sveitunum
hcr í kring. Er skokkað mikið þar?
“Ég veit nú ekki til þess. Það er ekki mikið
um það. Þetta er mikið til fólk í skrif-
stofuvinnu og þcss háttar störfum sem er
að skokka. Fólk í erfiðisvinnu heldur oft
að það þurfi ekki að standa í að fara að
skokka eftir vinnudag. En skokkið reynir
fyrst og fremst á lungu og hjarta, það cr
dælan og og það kerfi sem fær þjálfun í
skokkinu. Maður heyrir oft um hrausta og
sterka menn sem hafa verið að fá
kransæðastíflu og það eru þá menn sem
hafa ekki reynt þannig á þessi mikilvægu
líffæri sem hjartað og lungun eru.
Gísli bætir því við að inni í keppninni um
Trimmlarínuna teljist hlaup, ganga, sund
og yfirleitt sú hreyfing þar sem
viðkomandi tclst ekki stunda keppnis-
íþróttir.
-En aftur að þínu trimmi. Er ekki vont að
missa úr dag eða daga?
“Jú manni finnst eitthvað vanta þegar slíkt
gerist. Maður er ekki eins vel upplagður.”
"Það er kominn tími til að fleiri skrái
nöfn sín á sögu trimmtarínunnar",
segir Gísli.
Flýta sér hægt
-Hvað mundir þú ráðleggja fólki sem
hefur hugleitt jiann möguleika að fara að
skokka?
“Það er auðvitað bara að drífa sig af stað
en hver maður þarf auðvitað að finna hjá
sér löngun til að vilja fara að skokka. En
ég ráðlegg fólki að fara ekki of geyst af
stað í byrjun. Hlaupa ekki bara beint úr
húsi og hlaupa einhverja kílómetra. Fólk
á bara að ganga fyrstu skiptin. Ganga
greitt og fara síðan að prófa sig áfram mcð
hlaupin. Auðvitað erþað mjög mikið átak
að byrja á þessu. Ég fann það sjálfur þó ég
hefði nú stundað íþróttir áður fyrr. Ég finn
það bara núna hvað maður var voðalegur
Lazarus þegar ég var að byrja. Égfórekki
nema þrjá kílómetra til að byrja með og
þótti alvcg nóg. Núna fer maður hins
vegar helst ekki í galla nema fyrir 5 til 10
kílómetra! Enþettaersemsagtmikiðátak
að byrja og hættan er sú að mönnum
finnist þeir svo óskaplega þungir og stífir
að þeir gefist fljótt upp. En það er bara að
fara nógu rólcga af stað.
S vo er það einnig þetta sálræna, ef svo má
segja, velja sér einhvern heppilegan tíma
þar sem maður er ekki í tímaþröng og
reyna um fram allt að reyna að halda
þessum tíma. Einnig er skemmtilegt að
gera þetta í hópi manna, gera sem sagt
skokkið að skemmtilegum vana."
Við förum aldrei i sturtu án
DOPPEL DUSCH t<4
-sjampó og sápa í sama dropai