Skinfaxi - 01.04.1988, Síða 23
I heimsókn á
Austurlandi
Þcir sem eitthvað ferðast um landið okkar að vetri til vita að það getur verið
þrautaganga að komast á Austurlandið, sérstaklega ef ætlunin er að komast þangað í
háloftunum. En undirritaður getur vitnað um það að þegar maður er kominn á
Austurlandið er tekið vel á móti manni.
í síðasta mánuði voru menn úr stjórn UMFÍ á fcrð um gjörvallt Austurland, þau Dóra
Gunnarsdóttir, félagi í stjórn UMFÍ, SigurðurÞorsteinsson, framkvæmdastjóri UMFÍ
og Þórir Haraldsson, varaformaður UMFÍ. Þeim til fulltingis var Magnús Stefánsson,
framkvæmdastjóri Ungmenna- og íþrótlasambands Austurlands. Tilgangurinn var sá
að hcimsækja öll félög innan UÍA, halda mcð þeim fund, fræðast um starfið og kynna
starfscmi UÍA og UMFÍ. Þeir þremcnningar eru sammála undirrituðum að þetta hafi
verið skemmtileg og gagnleg reynsla. Skinfaxi vildi taka þátt í þessari fundaferð og
kynna síðan starfið íUÍA fyrir öðrum landsmönnum. Veðurguðirnir töfðu för Skinfaxa
nokkuð en á næstu síðum er lesefni sem gcfur ef til vill ofurlitla innsýn í starfið fyrir
auslan. Meira fylgir í næsta blaði. IH
▲
Skinfaxi
23