Skinfaxi - 01.04.1988, Qupperneq 27
Austurland
Eiðar
S
UIA.
Æskustöðvar
Rætt við skólastjórann Kristinn Sigurjónsson
Ungmcnnafélag Eiðaskóla er að
sjálfsögðu háð takmörkunum skólareglna
cn þetta er félag sem starfar eingöngu
innan skólans og meðan skólinn starfar”,
segir Kristinn Sigurjónsson er Skinfaxi
ræddi við hann í Eiðaheimsókn sinni.
Skipulag íþróttamála í Eiðaskóla og
annara félagsmála er á vegum ung-
mennafélagsins og það á sína fulltrúa á
ársþingum UÍA. Kristinn segir kennara
aðstoða félagsmenn í flestum
viðfangsefnum sínum og Eiðaskóli er
með kennara í hálfri stöðu, starfandi að
félagsmálum. Það er því ljóst að vel er
hlúð að Ungmennafélagi Eiðaskóla.
-Nú hlýtur ungmennafélagið að hafa
verið misvirkt, hver er þín reynsla?
“Já, það er auðvitað rétt. En félaginu
hefur yfirleitt gengið vel og er eiginlega
sjálfgcfið á stað sem þessum. Það sem ég
hef hclst tekið cflir af mínum ferli er hvað
viðfangscfnin ráðast af þcim sem eru hér,
jafnt kcnnurum sem nemendum. Hér
auðvitað ágætis aðstaða fyrir gott
fclagslíf. Hér er íþróttasalur, lítill að vísu,
cn nothæfur og sundlaug. Ágæt aðstaða
til ljósmyndunar. Hér er sérstök aðstaða
til að æfa hljómsveitir og það eru yfirleitt
tvær lil þrjár hljómsveitir í gangi á hverj-
um vetri. Hér er billíard aðstaða, gufubað,
líkamsræktarherbergi. Margt af þessari
aðstöðu hefur komið upp í tengslum við
áhugafólk um citlhvert þessara efna. Hér
var fyrir nokkrum árum maður með mik-
inn ljósmyndaáhuga og þá var gert mikið
í þcim efnum. Þá kom hér tæki til að
framkalla í lit, það voru haldnar
Ijósmyndasýningar. Nú er hér kennari
scm hefur áhuga á líkamsrækt og er vel að
scr í þeim efnum. Hún er nú mjög vinsæl
meðal ncmcnda.”
-Nú er mikið talað um hlutverk
héraðsskólanna í menntamálum landsins.
Hvcrnig snýr þetla við Eiðaskóla?
“Hér cr mjög blómlegt starf cins og þú
hefur vonandi aðeins ky nnst og skólinn er
fullsetinn, 114 manns. Þegar þú kemur
Kristinn Sigurjónsson, skólastjóri í
Eiðaskóla við hámyndina af Laxness
sem átti að nota á hátíðarsýningu
nemendaíopnuvikunni. Sýninginvar
helguð Laxness.
hins vegar að skólanum sérðu árciðanlega
að ýmsu cr ábótavant í viðhaldi við
húsnæði skólans. Það fjármagn sem við
höfum fcngið til viðhalds er allt of lítið.
Satt best að scgja er erfitt að sjá hvernig
halda á uppi eðlilegu skólahaldi ef ekkert
verðurað gert íþessum efnum á næslunni.
Það alvcg ljóst að þörf er fyrir Eiðaskóla á
Austurlandi. Austfirðingar vilja grcini-
lega þcnnan skóla því krakkarnir koma af
öllu Austurlandi og jafnvel af
Egilsstöðum þar sem þau hafa góða
aðstöðu til að sækja það nám sem hér er, 9.
bekkur og tveir bekkir í framhaldsnámi.
En það er ýmislegt hér sem ekki er á
Egilsstöðum. Það sem við verðum að
athuga er að nemendur eru misjafnir og
sumir finna sig bctur í heimavistarskóla.
S vo eru aðrir sem hentar ekki þetta form.”
-Hvert er þitt álit með framtíð
héraðsskólanna?
“Menn líta allt of mikið á héraðsskólana
sem einhvern einn pakka. Það cr hins
vegar mikil villa að gera það. Eitthvað
sem nýtist héraðsskóla á Vesturlandi
getur getur verið ómögulegt á Eiðum, og
öfugt. Það verður að skoða hvern fyrir sig,
út frá sérkennum hvers fyrir sig.
Ef hægt verður að halda húsnæði skólans
íbúðarhæfu og aðeins fram yfir það cr
engin breyting sjáanleg á þörf fyrir þenn-
an skóla eins og hann er í dag. Svo má
alltaf sækja fram á við, laga skólann að
nútímakröfum og helst vera aðeins á
undan þeirri þróun.
Og ef krakkar fá eðlileg tækifæri til að
sinna félagsstörfum og öðru með náminu
í þessu samfélagi Eiðaskóla, þá finnst
þeim gott að vcra hér og bera skólanum
góða sögu.
í þessu sambandi má nefna ákveðna
þætti í félagsstarfinu sem mér finnst að
UIA eða ungmennafélagshreyfingin gæti
sinnt. Mér hefur dottið í hug
félagsmálanámskeið og það sem tengist
íþróttamálum. Skóli scm Eiðaskóli þarf
Þessar stúlkur voru í 80 manna hópn-
um sem vann að hátíðarsýningunni
um Laxness, söngur, leikurogupples-
tur. Og greiðslan varð að vera í lagi.
Skinfaxi
27