Skinfaxi - 01.04.1988, Síða 31
Glíma
Að norðan
og sunnan
Eilt var það sem vakti nokkrar athygli
undirritaðs á Grunnskólamótinu, sá leiði
siður að láta allar stúlkurnar bíða á meðan
drengimir luku sínum glímum. Keppt var
eítir bekkjum og hefðu því verið hæg
heimatökin að láta súlkumar glíma með.
Varþað nokkuð leiðinlegtað í fyrsta sinn
sem stúlkur keppa á glímumóti í
Rcykjavík skuli þær settar svona skör
ncðar.
Eg tyllti mcr hjá tveimur níunda bekkjar
stúlkum scm sátu við aðra dýnuna og
fylgdust með strákunum glíma, þcim
Jóhönnu Kristjánsdóttur úr Skútu-
staðaskóla í Mývatnssveit og Ingibjörgu
Jónsdóltur úr Héraðsskólanum á Laugar-
vatni. Þær eru báðar í 9. bekk.
Þær stöllur voru spurðar hvernig fólk
brygðist við þegar það heyrði að þær æfðu
glímu.
Jóhanna sagði að það þætti ósköp
cðlilegt fyrir norðan. “Fólk tekur þessu
sem sjálfsögðum hlut. Enþaðcrlíkamikil
glímuhefð þaðan sem ég kcm.”
Jóhanna kcmur úr mikilli “glímu-
fjölskyldu” Faðir hennar er Kristján
Yngvason, einn besti glímumaður á
landinu um langt skeið og bræður hans
cinnig. “Ég hef fylgst með glímunni
undanfarin ár. Byrjaðiaðæfaglímu þegar
ég var í 5. bckk. Hún er kennd í
leikfimitímum. Síðan hcf ég æft hana
með hléum og hef gaman af.”
Ingibjörg sagði aftur að á Laugarvatni
hefði fólk orðið nokkuð undrandi fyrst cn
nú þætti þctta sjálfsagt mál, að hún og
aðrar stelpur væru í glímu. Og ég á tvö
systkini hér á mótinu. Ég held að það sé
fyrst og fremst eldra fólkið sem finnst
kannski stundum eitthvað skrýtið að
stelpur séu að glíma.
Núpverjar bíða þess að fá að glíma. Frá vinstri: Kári Jónsson, skólastjóri
Héraðsskólans að Núpi í Dýrafirði, Ásgeir Guðmundsson, Lárus Lárusson og
Svavar Birkisson.
Núpverjar í
suðurvíking
Kári Jónsson, skólastjóri í Núpsskóla var
mættur í íþróttahúsi Kennaraháskólans
ntcð þrjá stráka úr Núpsskóla, þá Ásgeir
Guðmundsson, Lárus Lárusson og S vavítr
Birkisson.
Ásgeir er ramm ur að afli og miki II fyrir sér
og felldi andstæðinga sína hverja af
öðrum þar til hann féll loks fyrir
gh'mumanni úr Þingeyjarsýslu cn þar
hcfur lcngi vcrið að finna cina bestu
glímumcnn landsins. Ásgcir sagðist æfa
allar þær íþrótlagreinar scm hann kæmist
í og það var grcinilegt að hann var
ótrúlega fimur miðað við stærð. “Ég hcf
nú vcrið stutt í glímunni cn mér finnst
þctta skcmmtileg íþrótt. Það þarf
gífurlcgt úthald og snerpu í glímuna
miðaðvið boltafþróttir til dæmis. Hún cr
því góð mcð öðrum grcinum.”
Kári sagði að cftir því scm hann vissi bcst
væri þctta "í fyrsta skipti í áratugi scm
glíma er æfð á Vcstfjörðum að cinhverju
ráði. Ég fékk hann Jón ívarsson til að
koma vcstur og halda glímunámskcið og
viðtökur urðu injög góðar. Og nú cr
árangurinn að koma í ljós", sagði Kári.
Skinfaxi
31