Skinfaxi - 01.04.1988, Side 34
Afmæli UMFÍ
Æskufólk og tengslin
við náttúruna
Það hefur ótvírætt gildi fyrir hvem ein-
stakling, að hann fái í æsku sem nánust
kynni af náttúrunni. Nú á tímum er það
ekki jafn sjálfsagt mál og fyrrum, þegar
þorri landsmanna ólst upp í sveit. Eftir því
sem borgar- og þéttbýlisbömum fjölgar
fara fleiri á mis við snertingu úr sveitinni,
og þá verður að grípa til annarra ráða, eigi
tengslin ekki að rofna.
Til náttúrunnar sækja menn lífsfyllingu,
andsvar við firringu borgarlífsins, sem
ekki fæst auðveldlega með öðrum hætti.
Jafnframt eru náin kynni af óbrotinni
náttúru til þess fallin að vekja virðingu
fyrir umhverfinu og ást á landinu. Þeir
sem ná í æsku sambandi við móður jörð
em líkiegir til að verða góðir liðsmenn í
náttúruvernd, sem er eitt af brýnustu
viðfangsefnum dagsins.
Leiðir til aö auka kynni af
náttúrunni
Böm í uppvexti þurfa á því að halda, að
skólinn veiti skilmerkilega fræðslu um
umhvcrfið. Þar nægir ekki bókvísin ein
saman, heldur þarf að tengja
umhverfisfræðsluna skoðunarferðum við
hæfi hvers aldursflokks. Hér reynir á
kennarana og skipulag skólastarfsins.
Æskulýðs- og íþróttasstarf sem tengist
útivist er á sama háttþroskandi, hvort sem
um er að ræða skíðaiðkun, skokk og
gönguferðir. Ekki er lakara að í
gönguferðum sé þátttaka fólks á öllum
aldri. Göngudagur fjölskyldunnar, sem
ungmenna- og íþróttafclög hafa bcitt sér
fyrir, er dæmi um þarft átak. Sérstök kort
og kynningarbæklingar af gönguleiðum
geta örvað til úlivistar og þar er hægt að
koma hollum ráðlcggingum til skila.
Ungmcnna- og í{)róltasamband Austur-
lands hcfur staðið að útgáfu göngukorla af
völdum svæðum þar eystra. A þeim er
vísað til vegar og leiðirnar merktar með
stjörnum, frá einni upp í fimm talsins, og
eru leiðirnar því erfiðari sem stjörnurnar
eru fleiri. Á gönguferðunum er gott að
fylgjast með örnefnum á korti, og enn
gleggri upplýsingar má fá með því að hafa
örnefnaskrár við hendina. Landslag væri
lítils virði, ef það héti ekki neitt, kvað
Tómas.
Gildi friðlýstra svæða.
Friðuðum og friðlýstum svæðum hefur
farið fjölgandi síðustu áratugi.
Sveitarfélög hafa stofnað lil fólkvanga,
Hjörleifur Guttormsson
Enn er haldið áfram með
erindi sem flutt voru á
Afmælisráðstefnu UMFÍ
síðastliðið haust. Hérkoma
þrjú erindi.
"Göngudagurfjölskyldunnar,... erdæmi um þarft átak."
Náttúruverndarráð komið upp þjóð-
görðum og Skógrækt nkisins friðað mörg
skóglendi. Slík svæði hafa að vonum
aðdráttaraíl vegna gróðursældar og
fjölbreyttrar náttúru. Þar er tilvalið að
fræða ungmcnni um náttúruna. Auðvelda
jiyrfti slíka fræðslu, m.a. mcð því að
tengja saman merkingar við göngusb'ga
og rilað mál í bæklingum. Ekkert kcmur
þó í staðinn fyrir Ieiðsögn slaðkunnugra.
Röskun vegna átroðslu
Vaxandi ferðamennska skapar hættu á
skemmdum á fjölförnum stöðum. Til að
komast hjá náttúruspjöll um þarf gott skip-
ulag á umferð, gönguslíga, leiðbeiningar
og eftirlit. Því miður skortir enn mikið á
skilning hjá fjárveitingarvaldi, þegar
nátlúruvernd á í hlut. Það er til lítils að
ætla að byggja upp ferðamennsku sem
atvinnugrcin, ef menn spilla íslenskri
náttúru sem cr undirstaðan.
Akstur vélknúinna tækja utan vega er
orðinn vcrulegt vandamál. Stöðugt
fjölgar tryllitækjum, sem mörg hver eru
sérhönnuð fyrir torfæruakstur.
Samkvæmt náttúruverndarlögum er allur
34
Skinfaxi