Skinfaxi - 01.08.1989, Blaðsíða 4
Frá
ritstjóra
Ingólfur Hjörleifsson
í Skinfaxa aö þessu sinni er aö finna
„lýsingu" svo langt sem hún nær í myndum
og máli af nokrum helstu mótum og
íþróttahátíðum sum-
arsins. Víðaumlandið
eru haldin íþróttamót
þar sem koma saman
þúsundir ungs fólks
ásamt foreldrum og
skyldmennum. íþrótta-
hátíð HSK á Hvolsvelli
og Sumarhátíð UÍA á
Eiðum eru aðeins tvö
dæmi um þetta. Það
sem einkennir báðar
þessar hátíðir er að fjölskyldan fær nú
meira rými til að njóta sín en oftáður. Þetta
er þróun sem hefur átt sér stað um allt land
á undanförnum árum. Forsvarsmenn
félaga leggjasífellt meiri áherslu á mikilvægi
þess að öll fjölskyldan komi saman,
foreldrarnir sendi bara ekki börn sín á
æfingar og í keppni og líti á þessa starfsemi
sem eins konar pössun fyrir yngri
kynslóðina. íþróttir eru mikið meira en
íþróttir. Félögin sem
sjá um þessa starfsemi
eru n.k. uppeldismið-
stöðvar. Endalítabörn
og unglingar oft á
þjálfara sinn og leið-
beinanda sem eins
konar foreldri. Orð
hans og og gerðir eru
þeim fyrirmynd. Og
foreldri hafa svarað
þessu kalli. Eitt dæmi
um þetta mátti sjá á Aldursflokkameist-
aramóti íslands í sundi sem haldið var í júlí
í Mosfellsbæ. Stór hluti fylgdarmanna hins
unga íþróttafólks voru foreldrar og þeir
höfðu auðsjáanlega mjög gaman af. íþrótt-
ir eru mikið meira en íþróttir, höfum það
alltaf hugfast. IH
Útgefandi: Ungmennafélag íslands. - Ritstjóri:Ingólfur Hjörleifsson. -
Ábyrgðarmaður: Þálmi Gíslason. - Stjórn UMFÍ: Pálmi Gíslason, formaður, Þórir
Haraldsson, varaformaður, Þórir Jónsson, gjaldkeri, Guðmundur H. Sigurðsson,
ritari. Meðstjórnendur:Dóra Gunnarsdóttir, Kristján Yngvason, Sigurbjörn
Gunnarsson. Varastjórn: Magndís Alexandersdóttir, Hafsteinn Þálssson, Matthías
Lýðsson, Sæmundur Runólfsson. - Afgreiðsla Skinfaxa: Öldugata 14, Reykjavík,
S:91-12546 - Setning og umbrot: Skrifstofa UMFÍ. - Prentun: Prentsmiðjan Oddi. -
Pökkun: Vinnustofan Ás.
Allar aðsendar greinar er birtast undir nafni eru á ábyrgð höfunda sjálfra og túlka ekki
stefnu né skoðanir blaðsins eða stjórnar UMFÍ.
4
Skinfaxi