Skinfaxi - 01.08.1989, Page 8
Og
jón Aruar MagMtt011 fofflftlir
Hann er sagður mjög
óvenjulegt náttúrubarn í
íþrótt sinni. „Hann getur
skákað þeim bestu í fram-
tíðinni ef hann einbeitir sér
af fullum krafti að tug-
þrautinni” segir maður
kunnugur í frjálsíþrótt-
unum. „Efni í heimsklassa
tugþrautarmann, hann þarf
bara að æfa”.
Hver er þessi piltur sem vekur
þessar væntingar? Jón Arnar
Magnússon heitir hann, tvítugur tug-
þrautarmaður úr HSK, eitt mesta efni
sem komið hefur fram um áraraðir í
íslenskum íþróttum. Osköp venju-
legur strákur sem hefur hat't svo mikið
fyrir stafni að hann hefur ekki gefið
sér tíma til að æfa af alvöru. „Þó það
sé ljótt að segja frá því hef ég gert
meira af því aðkeppa en að æfa”, segir
hann. En nú er að verða breyting á
því.
„Eitt það fyrsta sem ég gerði í
íþróttaiðkun var að taka þátt í Grýlu-
pottahlaupinu svonefnda sem HSK
stendur fyrir. Það er mjög merkileg
keppni”, segir Jón brosandi. Þetta er
hlaup sem hefur verið við lýði í mörg
árá Selfossi. Eg var sjö ára polli þegar
ég fór í þetta. Eldri frændur mínir
voru í þessu og það þýddi auðvitað að
ég varð að fá að vera með. Þetta
Grýlupottahlaupferfram yfirsumatið
og það eru hlaupin sex hlaup, 800 m
sprettir nokkra laugardaga. Það er
hlaupið upp á tíma og samanlagðir
tímar í lok sumars gilda.
Hvort þetta kveikti í mér veit ég
ekki. Mér fannst þetta ansi langir
sprettiren ég lét mig hafa það. En svo
hefur nú svo til öll ættin verið að
snúast í kringum frjáls íþrótti r ígegnum
árin og það hefur kannski ýtt á eftir
þessu hjá mér.
Prófaöi hitt og
þetta
En ég var líka í fótboltanum og
öðrum flokkaíþróttum. Það er meira
gaman að vera með félögunum heldur
en að veraeinn í þessu. Við getum svo
orðað þetta þannig að ég hafi verið að
prófa hitt og þetta í frjálsum. Það er
hálfgerð skömm að vera að segja t'rá
þessu en ég hcf ekkert æfl að viti í
gegnunt árin þó ég hafi verið að keppa
fyrir félagið og HSK. En það er nú að
breytast nokkuð með æfingarnar úr
þessu. Eg er að fara til Louisiana í
Bandaríkjunum íháskólanám. Egfer
að læra tölvufræði og í þessum skóla
8
Skinfaxi