Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1989, Blaðsíða 18

Skinfaxi - 01.08.1989, Blaðsíða 18
Ungmennavika NSU Það ersunnudagskvöld, 9.júlíog 90 manna hópur Norðurlandabúa afyngri kynslóðinni er að koma sér fyrir í Kleppjárnsreykjaskóla í Borgarfirði. Fólkið er dálítið ringlaðyfir veðurfarinu, rúmum sólarhring fyrr varþað ísínu heimalandi, Finnlandi, Danmörku, Svíþjóð, Noregi eða Slésvík við landamæri Þýskalands og Dan- merkur. Alls staðar var sól og næstum 30 stiga hiti. Nú er það komið í land elds og ísa eins og það vill gjarnan nefna ísland, sér engan eld en ísinn er ekki langt undan og hitinn er 9 gráður. Ungmennavikufólkið við Gullfoss. Einn daginn varfarið í stutta útsýnisferð um Borgarfjörð og var vatnsmesti hver heims einn af viðkomustöðunum, Deildartunguhver. „Átti elcki einhvern tíma að senda ykkur á Jótlandsheiðar”, spyr einn Daninn og reynir að hrista úr sér hrollinn. íslenskir þátttakendur í ungmennavikunni láta sem þeir heyri þetta ekki og brosa í kampinn. Við teljum þetta bara nokkuð gott á meðan ekki hreyfir vind og við sleppum við rigningu. Fólkið er saman komið á Islandi til að taka þátt í Norrænni ungmennaviku NSU sem stóð frá9. til 15 júlí í sumar. Skammstöfunin stendurfyrirNordisk samorganisation for Ungdomsarbejde eða Samtök norrænna ungmennasamtaka og er UMFÍ aðili að þeim. Ungmennavikan er árlegur viðburður, haldin til skiptis á hverju Norðurlandanna en hefur ekki verið 18 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.