Skinfaxi - 01.08.1989, Page 19
Ungmennavika NSU
Islensku þátttakendurnir voru allir
kvenkyns og hérfengu þœr Freygarð
Þorsteinsson, einn af stjórnendum
vikunnar, til aðfylla upp í. F.v.
Freygarður, Kaja Kristjánsdóttir,
Helga Aðalbjörnsdóttir, Helga
Barðadóttir sem einnig var í
undirhúningsnefnd vikunnar, Svanbjörg
Hinriksdóttir, Sigríður Hinriksdóttir.
Leiklistarhópurinn niðri í laug.
Er það „Oðurinn til gleðinnar" undir
yfirborðinu eða Svanavatnið
sem er þarna í gangi?
haldinn á Islandi síðan 1982.
Hugmyndin með Ungmenna-
vikum þessum er að bjóða fólki að
kynnast „frændum” sínum á hinum
Norðurlöndunum og því landi þarsem
Ungmennavikan er haldin, í fjöl-
breytilegu starfi í sjö daga. Þessar
vikur eru ávallt með ákveðnu sniði.
það er ákveðið þema sem mótast af
því landi þar sem ungmennavikan er
haldin og að þessu sinni var þa ð/sland:
náttúran og sagan.
Skipt í starfshópa
Þátttakendum er auk þess alltaf
skipt upp í ákveðna liópa. Á
Kleppjárnsreykjum voru Utivistar-
hópursem Þórunn Reykdal, kennari í
Reykholtsskóla og náttúrufæðingur,
stýrði. Þá var Iþróttahópur sem Iris
Grönfeldt stjórnaði, leiklistarhópur
sem Guðjón Sigvaldaon sá um,
tónlistarhópursem Þorvaldur Jónsson
sá um og síðan vídeó- og útgáfuhópur
sem Ingólfur Hjörleifsson sá um.
Utivistarhópurinn fór í langar
gönguferðir með Þórunni sem fræddi
fólk um náttúru og gróðurfar í
Borgarfirði og almennt á Islandi. Þessi
hópur varð mjög vinsæll og komust
færri í hann en vildu. Eftir nokkrar
Slésvíkingar túlka ósigur Danafyrir
Þjáðverjum og innlimun Slésvíkur í
Þýskaland, á kvöldvöku sem þeir sáu
um.
gönguferðir varkalsinn orðinn algjört
aukaatriði. Það kom einnig f ljós að
það var náttúran sem mest heillaði
fólkið við Island. Þegar tilkynnt var
að skoðunarferðir yrðu einskorðaðar
við Borgarfjörð komu strax
athugasemdirfráþátttakendum. „Allt
í lagi með Borgarfjörð”, sögðu þau.
„Sjálfsagt er margt fallegt að skoða
hér í héraðinu. En við viljum fá að sjá
Þingvöll, Gullfoss og Geysi."
Það kom sem sagt í ljós að það sem
flestir könnuðust við á Islandi voru
nöfn fyrrnefndra staða. Og þangað
vildu þau endilega fara. Það skipti
engu máli þó þeim væri gert ljóst að
þetta yrði l'erð upp á nokkur hundruð
kílómetra. „Sleepseeing” var þá
lykilorðið. Á ungmennavikum eru
útsýnisferðiröðrum þræði Sleepseeing
eða svefnferðir. Þar sem alltaf erfarið
seint að sofa á Ungmennavikum og
vaknað snemma var rútuferð ágæt til
að rétta við þau mál. Reyndar varð
lítið um svefn þar sem farið var um
Kaldadal ogþaðerekkineinmalbikuð
hraðbraut í Skandinavíu. Og útsýnið
var svo framandi og stórkostlegt fyrir
fólkinu að lítið varð um hið
hefðbundna „Sleepseeing”.
Leikræn tjáning
Og þau fengu sinn Geysi og
Gullfoss með viðkomu á Þingvöllum
og í Kerinu. Þessi ferð varð fyrir
mörgum hápunktur ferðarinnar, að
frátöldu almennu samneyti við aðra
þátttakendur.
Auk útivistarhópsins vakti
leiklistarhópurinn undir stjórn
Guðjóns Sigvaldasonar mikla lukku.
Skinfaxi
19