Skinfaxi - 01.08.1989, Blaðsíða 16
Helgina 14. - 16. júlí í sumar hélt
UIA (Ungmenna- og Iþróttasamband
Austurlands) sína árlegu Sumarhátíð
á Eiðum. Hátíðin sem haldin hefur
verið 14 sinnum tókst mjög vel. Alls
voru um 660 keppendur á
íþróttamótinu , allt frá Vopnafirði til
Djúpavogs. Gestir á mótinu voru frá
Ungmennasambandinu Ulfljóti
(USÚ) í A-Skaftafellssýslu.
Keppt var í 5 íþróttagreinum,
frjálsíþróttum, sem jafnan hafa verið
fyrirferðarmestar á Sumarhátíðinni,
sundi, pollaknattspyrnu, borðtennis,
og starfsíþróttum sem að þessu sinni
var aðeins í dráttarvélaakstri. Auk
þess tóku fatlaðir íþróttamenn frá
Seyðisfirði þátt í frjálsíþrótta-
keppninni. Þá kynntu blakmenn frá
Frá hátíðardagskránni á sunndudeginum. Hér má sjá keppendur nokkurra
félaga á hátíðinni. Myndir; Helgi Arngrímsson.
Góð tilþrifhjá einum pollanum á Eiðamóti ó.flokks í knattspyrnu..
Þrótti á Neskaupstað blakíþróttina
fyrir gestum.
Hátíðin hófst síðdegis á föstu-
deginum með frjálsíþróttakeppni
sem var fram haldið á laugardeginum.
Boðtenniskeppnin fór einnig fram á
föstudagskvöldinu. A laugardeginum
var auk frjálsíþróttanna boccia hjá
fötluðum íþróttamönnum, polla-
knattspyrna sem kallast Eiðamót 6.
flokks. Laugardeginum lauk síðan
með fjörugum dansleik ístóra tjaldinu
þeirra UIA manna þar sem Heitar
pylsur! léku fyrirdansi til 23.30.
A sunnudeginum fór sundmótið
fram í Eiðalaug og síðan hófst
16
Skinfaxi