Skinfaxi - 01.08.1989, Blaðsíða 30
Höttur á Egilsstöðum hefur byggt sér þak yfir höfuðið með
myndarlegum hætti á nokkrum mánuðum
Emil Björnsson utan við Hattarhúsið sem stendur við sundlaugina á Egilsstöðum.
Byggingarnefndin hœgra megin á myndinni, Emil, Hjálmar og Björn funda í
hálfnuðu húsi með íþróttamannvirkjanefnd Egilsstaða.
Iþróttafélagið Höttur hefur síðan í
febrúar á þessu ári haft yfir að ráða
fallegu vallarhúsi við íþróttavöllinn á
Egilsstöðum undir hluta starfsemi
sinnar.
Húsiðeru.þ.b. 80fermetraraðflatar-
ntáli og í því eru nú lítill funda- og
samkomusalur ásamt geymslu fyrir
úti-íþróttaáhöld vallarins sem hafa
verið á hrakhólum síðustu ár.
Hattarmenn eru ánægðir með hús
sitt eins og gefur að skilja enda reistu
þeir það í sjálfboðaliðastarfi á fjórum
mánuðum. Þann 2. nóvember 1988
var byrjað að grafa fyrir grunni og
síðan unnið vel fram til 17. febrúar
sem var síðasti vinnudagur í húsinu.
Emil Björnsson, formaður bygg-
ingarnefndar, sagði að markmið Hatt-
armanna hefði verið að byggja ódýrt
en vandað og hlýlegt hús sem væri
þjónustuaðstaða fyrir íþróttavöllinn á
Egilsstöðum, geymsla fyrir útiáhöld
og félagsaðstaða fyrir Hattarfólk.
Húsið stendur við hlið
sundlaugarhússins á Egilsstöðum og
er byggt á sökklum gamals gistirýmis.
I Byggingarnefnd voru auk Emils þeir
Björn Kristleifsson, formaður Hattar
og Hjálmar Jóelsson.
„Það voru Höttur og Egilsstaðabær
sem gerðu með sér samkomulag um
byggingu hússins”, sagði Emil ístuttu
spjalli við Skinfaxa um hús-
bygginguna. Egilsstaðabær lagði til
800 þúsund kr. á árinu 1988 og réði
byggingarmeistara. Við Hattarmenn
lögðum hins vegartil sjálfboðaliða til
húsbyggingarinnar og þeir voru á
öllum aldri. „Fullbúið kostar húsið
um 1,5 milljónir króna og þá er ekki
talið með það sjálfboðaliðastarf sem
fram fór. Okkur sýnist að á síðasta ári
hafi farið 294 klst í sjálfboðavinnu,
þar af skiluðu yngri en 16 ára 52 klst.
Eftir áramót fóru sfðan um 604 klst. í
sjálfboðavinnu og yngri en 16 ára
30
Skinfaxi