Skinfaxi - 01.08.1989, Blaðsíða 29
viðeftirtalin lönd um ungmennaskipti:
Bandaríkin og Ástralíaen þarerdvölin
6 mánuðir. Einnig England, Wales,
Skotland, N-írland, Holland, Sviss,
Luxemborg, Finnland og Island, en í
þessum löndum erdvölin niiðuð við 3
mánuði.
Að víkka
sjóndeildarhringinn
Ungmennaskipti á ntilli landa eru
meðal annars til að víkka
sjóndeildarhring þátttakenda og um
leið viðurkenning á starfi þeirra fyrir
4 H félögin. En til þess að verða valin
sem skiptinemi þurfa ungmennin að
vera á aldrinum 18-28 ára og hafa
gegnt stjórnunarstörfum eða öðrum
ábyrgðarstörfum fyrir 4 H
hreyfinguna. Þegar talað er um
ungmennaskipti felur það í sér að um
gagnkvæm skipti er að ræða. Við
sendum ungmenni til fyrrnefndra
landa og þau senda okkur ungmenni
til baka. Þó hefur enginn komið frá
Islandi þau 3 ár sem við höfum haft
4 H samtökin
í Svíþjóð.
ungmennaskipti við UMFÍ. Við
undrumst hvers vegna enginn hefur
komið frá íslandi og þykir það miður.
Það er niikill áhugi í Svíþjóð á því að
gerast skiptinemi á íslandi, t.d. sóttu 4
af 16 umsækjendum um að komast til
íslands íár. Að vera IFYE skiptinemi
felur svo mikið í sér og gefur
viðkomandi góða möguleika ef þeir
vilja notfæra sér tækifærið sem býðst.
Skiptineminnfæraðbúahjáfjölskyldu
á meðan á dvölinni stendur. Þar gefst
tækifæri á að kynnast landi og
lifnaðarháttum fólks og daglegu lífi
fjölskyldunnar í leik og starfi. Þeir
skiptinemarsem til okkarkoma dvelja
3-4 vikur á hverju heimili og skipta
síðan um dvalarstað. Tilgangurinn
með því er að gefa skiptinemanum
kost á að sjá meira af landinu, kynnast
mismunandi fjölskyldum og
aðstæðum þeirra. Þó geta skiptinemar
búið lengur á hverjum stað.
Eg er ntjög ánægð og þakklát fyrir
að hafa fengið tækifæri til að vera
skiptinemi hér í sumarog ef aðstæður
hefðu leyft hefði ég viljað vera hér
lengur. Þrátt fyrir að veðrið hafi ekki
verið upp á það besta. Svona tækifæri
fæ ég aldrei aftur.
Carina Andersson
SKINFAXI
Tímarit Ungmennafélags íslands
6 hefti á ári
Gerist áskrifendur
Afgreiösla Ötdugata 14 - 101 Reykjavík
Símar: 91-12546 og 91-14317
Skinfaxi
29