Skinfaxi - 01.08.1989, Blaðsíða 10
Jón Arnar í 4X100 m boðhlaupinu á M1 í júlí síðastliðnum. Jón vann síðasta
sprettinn létt og HSK sveitin setti nýtt HSK met, 43,1 sek.
eftir síðustu alþjóðlegu mót. Norður-
landamótið í ár og Heimsmeistaramót
unglinga í fyrra?
„Jú, ég get ekki verið annað,
miðað við að koma á þessi mót óæfður.
Þarna voru strákar sem hafa æft
skipulega síðan ég veit ekki hvenær.”
-Hvar er nú að finna efnilegustu
strákana í tugþraut? Arftaka Jurgen
Hingsen og Daley Thompsons.
„Það er nú einn Svíi ansi efni-
legur. Svo er einn V-Þjóðverji sem
þeir vilja kalla hinn nýja Hingsen. Þá
dettur mér í hug einn spænskur strákur
sem er líka efnilegur. Frakkarnir eru
góðir en ég hef lítið séð og heyrt af
ungum Bretum í tugþrautinni. Þessir
strákar eru jafnaldrar mínir, sumir að
vísu aðeins eldri.”
Práinn mín stoö
og stytta
Það var enginn sem ýtti á Jón að
fara að keppa í þrautinni nema þá
Þráinn Hafsteinsson. „Þráinn hefur
aðstoðað mig mikið og verið mín stoð
og stytta, bæði með skólann og
þjálfunina. Að öðru leyti má kannski
segja að þetta hafi komið af sjálfu sér.
Mér fannst þetta bara spennandi grein.
Það reynir á mann, ef vel tekst til
verður maður mjög alhliða
íþróttamaður. Ég fór að prófa þessar
greinarmeðþrautina íhuga. Svo náði
ég góðum árangri mjög fljótlega og þá
var auðvitað farið að ýta á mig að
hella mér út í þrautina.”
-Hafa menn ekki verið að jagast í
þér að æfa meira?
„Jú, jú, það hefur bara ekkert
orðið úr því að ráði. Ég er að þeytast
í svo mörgu.”
-Jón segir stangarstökkið vera
sína uppáhaldsgrein.
„Stöngin er þrælskemmtileg þó
að það hafi gengið illa hjá mér í henni
á þessum stórmótum í júní í sumar og
svo í fyrra þegar ég braut stöngina í
miðju stökki og brákaðist á olnboga.
Þetta er kannski svipað og kom fyrir
Daley Thompson á Olympíu-
leikunum”, segir Jón Arnar og brosir.
„Stöngin dúndraðist í hendina þannig
að ég brákaðist. En það var ekkert
alvarlegt að öðru leyti. Ég hef verið
heppinn því stöngin straukst við
olnbogann á mér og það var nóg til
þess'að ég brákaðist. Eftir þetta hefur
maður kannski verið hálf ragur við
stöngina.
En þetta er mikil tæknigrein og
kannski þess vegna gaman að glíma
við hana. Eins er með köstin. Mér
finnst gaman að eiga við þau. Þetta
eru kannski þær greinar þar sem ég
þarf að bæta mig mest og ég er helst
með hugann við þessa dagana.”
Til Ðandaríkjanna
í nám og æfingar
-Einhver sagði eftir sigur þinn í
100 metrunum að nú þyrfti bara að
hlaða greinum á Jón Arnar í
Bikarkeppni FRÍ. Jón jánkar þessu
öllu. „Jú, það er rétt til getið, ég fer
líkast til í einar fimm greinar, 100,
200og400metrana, boðhlaupin, stökk
og svo framvegis. Enda eru þetta
tugþrautargreinar. Það er aldrei að
vita nema að Bikarinn verði mín
síðasta keppni í sumarhérheima. Ég
er aðfaratil Bandaríkjanna ínám. Til
Louisiana að læra tölvufræði og æfa
frjálsar. En það er óráðið með það
hvort ég fer í haust eða um áramót. En
ég fæ ágætan félaga með mér, Friðrik
Larsen úr UDN, sem er líka að fara út
í nám.“
-Síðastliðið vor, í maí, fór Jón
Arnar í æfingabúðir lil Lundúna með
tugþrautarlandsliðinu og var æft á
þeim fornfræga leikvangi, Crystal
Palace. Jón Arnar segir að þetla hafi
verið skemmtileg ferð.
„Þetta var mjög skemmtilegur og
samhentur hópur og góður andi. En
stíft var það. Ég kom þarna æfing-
arlaus og fór beint á tartanið í tvær
langaræfingar ádag. Þannig að ég var
hálf stífur, með harðsperrur vikuna
eftir. En ég hafði mjög gott af þessu.
Verst að ég fylgdi þessu ekkert
almennilega eftir. Ég er bara að
þvælast í svo mörgu og hef ekki gefið
mértímaíþetta. En nú verðurbreyting
á því.
Ferðin til Englands var hluti af
þessu tugþrautarátaki sem FRI hefur
hrundið af stað og það er strax að skila
10
Skinfaxi