Skinfaxi - 01.08.1989, Side 21
Göngudagurinn
Hópwinn í Gretli á Flateyri hvílist á leiðinni út í Mosdal sem er eyðidalur í
Önundarfirði. Alls tóku 60 manns þátt í Göngudeginum á Flateyri.
Göngudagur
fjölskyldunnar var
„haldinn hátfölegur"
í júní víöa um land í
samstarfi viö
Bandalag íslenskra
skáta
Hinn árlegi og hefðbundni
Göngudagur Fjölsky Idunnar fór fram
laugardaginn 24. júní síðast liðinn og
tókst alls staðar mjög vel þar sem
gengið var.
Göngufólk var á öllum aldri eða allt
frá smábörnum og uppí áttræð
ungmenni. I öllum göngunum var efnt
til ýmissa uppá komu svo sem
söguflutnings, grillveislu, frásagniraf
umhverfi og næstu kennileitum.
Nýjar gönguleiðir
Yfirleitt var farið á fallega staði í
nágrenninu þar sem fólk hafði jafnvel
ekki komið svo árum skipti og
skemmtilegt er að lesa frásagnir sem
borist hafa um skemmtan fólksins af
þessu. Þarsem þettaerorðinn árviss
atburður hjá félögum er alltaf reynl að
fara á nýja staði og með þessu kynnist
fólk á mjög áhrifaríkan hátt náttúru
lands síns og gæðum. Það metur þetta
framtak ungmennafélaganna að
verðleikum. Einnig er greinilegt að
áhugi fólks fyrir gönguferðunt fer
sívaxandi og finna þeir sem eru meðal
þátttakenda að þetta er ómissandi
þáttur í starfseminni og sumum finnst
jafnvel að meira mætti af þessu gera.
Viðurkenningar
og merki
Þó er það nú svo að þeir sem mestan
hafa áhugann finnst aldrei of mikil
þátttakan. Þar getur að vísu margt
komið til svo sem óheppilegt val á
degi til göngunnar, eitthvað sérstakt
komið uppá, á viðkomandi stað og
svo þetta sígilda: „Ég hef ekki tíma”.
Enn eru ekki komin full skil frá öllum
sem efndu til Göngudags Fjöl-
skyldunnar enda gátu margir um það
að þeir myndu fresta deginum hjá sér
þar til síðar í sumar eða haust. Allir
sent voru með í Göngudeginum fengú
viðurkenningu, álmerki og bera það
með stolti. Alls voru send út frá
Þjónustumiðstöð UMFÍ 3615 merki
til 54 félaga og er vitað að ekki öll
gengu út. Ætla má þó að um 3000
manns um land allt hafi verið með í ár,
en tæmandi skýrsla liggur ekki frammi
fyrren um áramót 1989-'90.
Hvað með hin
félögin
Þegar horft er á þessa tölu 54 þá
kemuróneitanlegauppíhugann,hvað
meðhin 175? Hvað getum við gert til
aðgeraþau virk íþessumefnum? Við
skulum leita ráða og finna lausn.
Þrátt fyrir þetta skilar Göngudagur
Fjölskyldunnarumtalsverðumárangri
í fjölþætt verkefnaval ungmenna-
félaganna.
Hörður S. Óskarsson.
Skinfaxi
21