Skinfaxi - 01.08.1989, Síða 26
Meistaramót íslands í frjálsum íþróttum
árangur í spretthlaupum og langstökki
löglegur því það var svo til logn á
Selfossvelli, sem er sjaldgæft.
Nú, það er ekki að sökum að spyrja
þegar veður er gott, þá kemur árang-
urinn. Margirbættu sinn persónulega
árangur þó meistaratitill væri Iangt
undan. Enda er það aðalatriðið hjá
krökkum á þessurn aldri að vera með
og hafa gaman af því sem þau eru að
gera.
Tvö Islandsmet voru bætt og mörg
önnur voru alveg við það að falla.
HSK fékk flesta meistaratitla eða 6,
UMSB, HSÞ og UÍA 4, USÚ og ÍR 3,
HSH 2 og UMSE og USAH einn
hvort félag.
Aðalbjörg Hafsteinsdóttir.
Þrjárfyrstu í kúlvarpi telpna. Vigdís
Guðjónsdóttir HSK, sigraði en hún
vann tvo Islandsmeistaratitla.
Ragnhildur Einarsdóttir USÚ, varð
nr. 2 og Berglind Osk Gunnarsdóttir
HSK, varð 3. í röðinni.
Halldóra Jónasdóttir UMSB, ásamt Irisi Grönfeldt, þjálfara sínum. Halldóra
bœttilslandsmetsitt íspjótkastistelpna á mótinu úr31,00m í35,78. Þá sigraði
hún einnig í kúlvarpi. Þess má geta að annar nemandi Irisar, Bergþór Olason
UMSB, sigraði í sömu greinum í piltaflokki.
Þrjárfyrstu sveitirnar í 4x100 m boðhlaupi stráka, UÍA ífyrsta, HSÞ í öðru
og HSK í þriðja.
Skarphéðinn Ingason HSÞ, reyndi
við nýtt Islandsmet í hástökki 1,60 m
en felldi naumlega. Hann á
strákametið, 1,58 m sem hunn setti
á Krossmúlavelli I Mývatnssveit, 8.
júlí síðastliðinn. Þá stökk
Skarphéðinn 12 sentimetrum lengra
en eigið Islandsmet í langstökki
(5,13 m) en meðvindur var aðeins of
mikill. Hann setti metið á Húsavík í
júní síðastliðnum.
26
Skinfaxi