Skinfaxi - 01.08.1991, Síða 13
S L Y S í í Þ R Ó T T U M
sem maður sá ekki áður, annarskonar
ökklameiðsl, t.d. á innanverðum ökkl-
anum. Þessi meiðsl verða vegna þess
að þegar menn stoppa þá beita menn
fætinum aðeins útávið og af því að völl-
urinn er svo stamur þá verða átökin svo
snögg að álagið á fótinn verður öðruvísi
og meiðslin líka. Gerviefnið gerir það
líka að verkum að þegar menn detta fá
þeir brunasár á húðina, þau sár gróa illa
og slæmar sýkingar geta grasserað. Ef
menn fá svona brunasár þá þurfa menn
að þvo þau vel og bera á þau sýklavam-
arkrem eða vökva og hugsa vel um þau
til þess að þau grói fyrr. Það er ekki
ráðlegt að nota vaselín, það getur hrein-
lega dregið í sig sýkla og bakteríur.”
Vantar heildarrannsóknir
á slysum
„Það sem vantar er heildarrannsókn á
tíðni slysa í íþróttum, hver meiðslin
eru, hve alvarleg þau eru og hvaða vell-
ir eða hús eru betri eða verri en önnur.
Ég er sannfærður um að undirlagið
skiptir miklu máli og slæmt gólf getur
verið slysagildra. Ég hef sérstaklega
tekið eftir því að íþróttamenn sem hafa
þjálfað í íþróttahúsinu á Sauðárkróki
hafa kvartað undan hörðu gólfi og það
er einkennilegt hvað margir voru með
slæm hné og hásinartognun eftir þjálf-
un. Það er ljóst að það þarf að vanda
mjög til þegar efni á velli eða gólf eru
valin og ekki hægt að taka bara ó-
dýrasta tilboðinu ef menn ætla að hugsa
um heilsu og hag íþróttaunnenda. Þá er
brýnt að halda völlunum við, gamla
brautin á Valbjarnarvelli hefur t.d. or-
sakað mörg slys vegna þess að hún er
götótt og slitin og það er ekki forsvar-
anlegt að bjóða upp á slíkt.
Hluti af forvörnunum er einnig að
íþróttamaðurinn sjálfur sé meðvitaður
um hvað hann á að gera ef hann finnur
fyrir meiðslum og hann geri það strax
en geymi það ekki.”
Skótau barna forsenda
framfara á íþróttabraut-
inni
Er ekki mjög mikilvœgt aÖ börn noti
strax góða íþróttaskó?
„Jú, ég tel að framtíð bama í íþróttum
byggist á því hvemig skótau þeirra er í
upphafi. í uppvextinum getur fóturinn
mótast af skónum. Ef börn eru með
plattfót, framfótarinnskeifu eða skakka
hæla vegna Iausra liðbanda þá þarf að
fyrirbyggja meiðsli með notkun inn-
leggs strax og þessi atriði koma fram.
Það er einnig mikilvægt að halda fótun-
um við fram á fullorðinsár, því ef ekk-
ert er að gert strax á bamsaldri er ekki
svo gott að breyta miklu um lögun fót-
arins síðar.
Ég held að krakkar líði oft fyrir það að
skóbúnaði þeirra er ekki sinnt nægilega
vel og oft kaupa foreldrar fremur lélega
skó en þá sem eru dýrari og mun betri.
Mér finnst samt að foreldrar geri sér
betur og betur að gera sér grein fyrir
mikilvægi þessa og á stofuna til mín
koma foreldrar með börn sem þeim
finnst að beri sig illa að í göngu eða
hlaupi. Bamaíþróttaskór eru nú orðnir
mikið betri en áður og sem betur fer
eru foreldrar hættir að kaupa kínaskó á
krakkana til að nota í íþróttatímum eða
á leikvellinum.”
Heildsölubirgöir J.S. Helgason hf. S: 68 5152