Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1991, Blaðsíða 28

Skinfaxi - 01.08.1991, Blaðsíða 28
FRJÁLSAR í Þ R Ó T T I R Ahyglisverðir frjálsíþróttamenn Bikarkeppni Frjálsíþróttasam- bandsins, 1. og 2. deild, fór fram samtímis í Mosfellsbæ 10.-11. ágúst s.l. Var það í fyrsta sinn sem sá háttur er hafður á og tókst hið nýja fyrirkomulag vel. Keppnin varð skemmtilegri fyrir áhorf- endur enda lítið um eyður. Keppendur létu ekki sitt eftir liggja og var baráttan mjög jöfn og spennandi í báðum deildum. Sérstaklega var keppnin hörð í fallbaráttunni og um annað sætið í 2. deild. Það var ekki fyrr en í seinustu grein- inni, 1000 m boðhlaupi kvenna, að úrslitin réðust. í 1. deild varð niðurstaðan sú að ÍR-ingar urðu að sætta sig við að fylgja Ár- menningum niður í 2. deild með sama stigafjölda og Eyfirðingar, sem urðu i 4. sæti. FH-ingar tryggðu sér hins vegar nokkuð öruggan sigur, eftir mikla bar- áttu við HSK framan af. í 2. deild voru Skagfirðingar öruggir í efsta sætinu, en mikil barátta var um næstu sæti. Með sigri í boðhlaupinu tókst UMSK að komast 1/2 stigi upp fyrir HSÞ og tryggja sér annað sætið og þar með setu í 1. deild að ári. Aust- ur-Húnvetningar urðu hins veg- ar að sætta sig við að falla með Dalamönnum niður í 3. deild, með jafnmörg stig og Borgfirð- ingar sem hlutu 4. sætið. Sann- arlega mjótt á mununum svo ekki sé meira sagt. Skinfaxi fékk Sigurð P. Sigmundsson langhlaupara til að fjalla um nokkra einstaklinga, sérstaklega nýliða, sem stóðu sig vel og kepptu fyrir ung- mennafélög. Af stórum hópi er að taka, en öll félögin sex er þátt tóku í 2. deild, UMSS, UMSK, HSÞ, UMSB, USAH og UDN eru innan UMFÍ og í 1. deild tóku þátt HSK og UMSE. Efnileg hlaupakona frá Dalvík Frjálsíþróttastarf á Dalvík hefur í langan tíma verið drjúgt með Vilhjálm Bjöms- son í broddi fylkingar, þrátt fyrir laka aðstöðu. Af afreksfólki í seinni tíð má nefna Sigurð Matthíasson, spjótkastara, Þóru Einarsdóttur, hástökkvara, og nú seinast Snjólaugu Vilhelmsdóttur, spretthlaupara. Snjólaug vakti einmitt athygli í Bikarkeppninni fyrir góðan ár- angur. Hún er komin í fremstu röð í spretthlaupum og langstökki. Hún kom ekki síst á óvart með góðu 400 m hlaupi, 58,74 sek og góðum 400 m spretti í 1000 m boðhlaupi. Það bendir til þess að hringhlaupið gæti allt eins orðið besta grein Snjólaugar eftir 2-3 ár. Rauöa Ijónynjan var ósigrandi Guðrún Arnardóttir, eða rauða ljónynjan eins og einn ágætur íþróttamaður hefur nefnt hana, var burðarásinn í liði UMSK. Hún hafði mikla yfirburði í 100 m, 200 m og 100 m grindahlaupi auk þess að spila stórt hlutverk í boð- hlaupunum. Guðrún hefur verið að bæta sig jafnt og þétt undanfarin ár, sér- staklega í 100 m grindahlaupi. Sú grein virðist henta henni best, en þar nýtist styrkur hennar vel. Guðrún á Islandsmetin í langstökki og þrístökki án atrennu og maður hefur á tilfinningunni að ef hún næði meiri mýkt í hlaupalagið myndi styrkurinn skila henni stórbættum árangri í sprett- hlaupunum. Þingeyskur millivega- lengdahlaupari kveður sér hljóðs Undanfarin 2-3 ár hefur mátt sjá góðan árangur hlaupara úr HSÞ á unglinga- 28 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.