Skinfaxi - 01.08.1991, Blaðsíða 25
P E L É
HATT
J&L.
-höfumréttvið!
■ ■ JUU| X
VÍSA (? ■ II
mmmmm hM
Háttvísi
- höfum rétt við
Pelé, prúðasti knattspyrnumaður
allra tíma, á íslandi
Knattspyrnusnillingurinn Edson
Arantes do Nascimento eða Pelé
eins og hann hefur verið kallaður
dvaldi á íslandi dagana 11.-14. ágúst
síðastliðinn.
Það var Knattspyrnusamband ís-
lands og VISA ísland sem fengu
þennan frábæra knattspyrnumann
hingað til landsins til að taka þátt í
sérstöku landsátaki, þar sem
íþróttamenn eru hvattir til þess að
sýna prúðmannlega framkomu og
háttvisi i leik, undir kjörorðunum
„Höfum rétt við". Átakið er liður í
alþjóðlegu átaki knattspyrnuhreyf-
ingarinnar til að draga úr grófum
leik knattspyrnumanna um allan
heim.
Pelé er fæddur 23. október 1940, í
Brasilíu og hefur verið talinn besti
knattspyrnumaður sem uppi hefur ver-
ið. Hann byrjaði að leika knattspymu
um 6 ára aldur á götum Sao Paulo.
Faðir hans var knattspyrnumaður og
kenndi honum fyrstu tökin á boltanum
og þá tækni sem hann hefur búið að.
Leikmannsferill Pelé, sem stóð yfir í 21
ár, er glæsilegur og öðrunt knattspyrnu-
mönnum til mikillar eftirbreytni.
Aldrei nokkurn tírna fékk hann að sjá
gula eða rauða spjaldið hjá dómaranum
og er eini knattspyrnumaðurinn sem
Skinfaxi
25