Skinfaxi - 01.08.1991, Blaðsíða 32
IÞROTTAKENNSLA
Badminton
kennsla
Afstaö nú, í badminton!
Vaxandi útbreiðsla badminton-
íþróttarinnar ber vott um þann
mikla áhuga sem fólk á öllum aldri
hefur á þessari skemmtilegu íþrótta-
grein. í flestum íþróttahúsum eru
badmintonvellir og sá útbúnaður
sem til þarf, súlur og net. Mörg
íþróttafélög hafa innan sinna vé-
banda badmintondeildir og hjá
þeim er hægt að fá upplýsingar um
starfið. Það færist mjög mikið í
vöxt að vinnufélagar og fjölskyldur
leiki saman af mikilli innlifun. Það
sem gefur badmintoníþróttinni auk-
ið gildi nú á tímum þegar æ meira
er hugað að aukinni hreyfingu og
hollum lífsháttum er að íþróttin
býður upp á mikla hreyfingu,
spennu og útrás og þar að auki er
hætta á meiðslum lítil. Badminton-
iþróttin hentar ungum sem öldnum
og það er aldrei of seint að byrja, en
byrjið samt núna!
Útbúnaður
Það ætti að vera auðvelt að hefja bad-
mintonæfingar því útbúnaður spilarans
er ekki mjög flókinn, spaði, íþróttaskór,
íþróttaföt og badmintonkúlur. Gæði og
verðmunur á spöðum er nokkuð mikill.
Þó er hægt að fá góðan byrjendaspaða
fyrir um 2000 krónur, en góður keppnis-
spaði kostar milli 10 og 15 þúsund krón-
ur. Þægilegustu íþróttaskórnir fyrir bad-
minton eru lágir skór með hrágúmmí-
sóla sem gefa góða spyrnu og renna
ekki til við snöggar hreyfingar. Iþrótta-
föt eru einfaldlega stuttbuxur, stutterma-
bolur og íþróttasokkar, allt eftir vali
hvers og eins. Ef menn eiga íþróttagalla
er ágætt að klæðast honum í byrjun æf-
r_
40 40
.420,.
'lrt
2530
VÖLLUR A
40 2530
-If-----------
40 40
420 ,
inh
súla
Endalína og aftari sendilína í einliðaleik
Aftari sendilína í tvíliðaleik
Hægri
sendireitur
Vinstri
sendireitur
Fremri sendilína
Net
Fremri sendilína
Vinstri
sendireitur
Hægri
sendireitur
Aftari sendilína í tvíliðaleik
net
súla
Endalína og aftari scndilína í einliðaleik
6100
** merkingar fyrir prufureit
Myndl.
32
Skinfaxi