Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1991, Blaðsíða 20

Skinfaxi - 01.08.1991, Blaðsíða 20
V I Ð T A L En það eru til menn sem eru á öndverð- um meiði. Fræðimaðurinn John Nesbit, sem hér var nýlega, hefur t.d. haldið því fram að hnignunarskeið íþrótta væri að hefjast. Hann telur sig geta séð merki þess að listir, bókmenntir og ýmis önnur menningarstarfsemi muni taka við sem tómstundagaman af íþróttunum. Ég sé reyndar ekki nein merki þess, en held að það sé mikilvægt umhugsunarefni hvort og hvernig hlutverk íþrótta og gildi þeirra komi til með að breytast frá því sem nú er.” Lykill að fjöldaþátttöku I íþróttum er bætt aðstaða Hvað getum við gert til þess að fá fleiri til þess að stunda íþróttir? „Fyrst og fremst þarf að bæta aðstöðu fyrir almenningsíþróttir. Hún þarf að vera þannig að hægt sé að koma þegar hentar. Þetta krefst þess að við hugsum öðruvísi um uppbygginguna en við höf- um gert. Það er nauðsynlegt að byggja stór, fjölnota íþróttahús. Meira segja hér í Reykjavík er ekki neitt íþróttahús þar sem þú getur komið og farið að vild. Við höfum góða sundstaði og skíðalönd og á þessa staði er hægt að koma þegar manni hentar, með fjölskyldu, félögum eða vinum og það skiptir miklu máli. Það er hægt að skokka stóran hluta árs- ins, en ekki allt árið. Mjög margir þola ekki kuldann á veturna og gefast upp. Það eru hvergi innanhússbrautir fyrir hlaupara. Til þess að flestir geti stundað íþróttir þarf aðstaðan að vera til staðar, hún er númer eitt. Það skiptir máli að menn finni sína íþróttagrein, grein sem þeim finnst gam- an að stunda og þá kemur allt annað að sjálfu sér. Ef við tökum Reykjavík sem dæmi, þá finnst mér að samstarf ætti að vera milli UMFI, ISI, Háskóla Islands og Reykjavíkurborgar um byggingu fjöl- nota íþróttahúss. Það eru um 5000 ung- menni í HI og helmingur þeirra kemur úr félögum utan að landi. Þetta fólk hef- ur ekki neina íþróttaaðstöðu í Reykajvík. Aðstaðan er Akkilesarhæll, bæði al- menningsíþrótta og keppnisíþrótta og þar þurfum við að taka okkur verulega á.” íþróttamaðurinn Þórólfur - „ef ég hreyfi mig minna, minnka afköstin í vinn- unni" Hvað með íþróttamanninn Þórólf í UIA bolnum, er hann enn að? „Ég hef mikinn áhuga á íþróttum og hef reynt mig í mörgum greinum, þar má nefna fjölbragðaglímu og hnefaleika, en þú hefur það ekkert eftir mér. Skemmti- legasta íþróttin sem ég hef reynt er stangarstökk sem ég stundaði svolítið fyrir aldarfjórðungi eða svo. Nú spila ég körfubolta á vetuma með vinum mínum og félögum og svo hleyp ég líka tölu- vert”. Þú vinnur mikið, finnst þér þú ekki hafa gott af þeirri áreynslu sem þú færð í í- þróttunum? „Jú og sérstaklega eftir því sem ég eld- ist, finn ég að mér líður betur og ég er á- nægðari. Mér finnst mjög gaman að íþróttum, bæði að stunda þær og horfa á þær,” segir Þórólfur og leggur áherslu á orð sín. „Ég sakna þess ef ég hef ekki getað hreyft mig í einhvem tíma og af- köstin í vinnunni verða strax minni. Það er alrangt að maður sé að tapa einhverj- um tíma, mér finnst að því meiri tíma sem ég ver í að leika mér í íþróttum því meira afkasta ég í vinnunni. Það er beint samband þar á milli. Þegar ég hleyp nota ég tímann til þess að hugsa um verkefnin. Það er enginn sem getur truflað mann og aldrei er betra næði til þess að hugsa heldur en þegar maður skokkar um vesturbæinn. Síðastliðin tvö ár hef í keppt í 800, 1500, 3000 og 5000 metra hlaupum. Mér finnst það vera hluti af íþróttunum að leggja sig fram. Ef maður gerir það ekki er maður í raun að svíkja málstaðinn. Svo bætist það við að það er alltaf jafn gaman að hitta gamla vini og félaga, hressa og káta og ég legg mig fram um að standa mig sem best. Það er mest gaman að vinna vini sína og sérstaklega þá sem ekki hafa lært að tapa”, segir Þórólfur og glottir ísmeygilega. Myndirnar eru teknar á frjálsíþróttamóti Gogga galvaska í Mosfellsbœ, Meistara- móti 14 ára og yngri á Akureyri og í Reykjavíkurmaraþoni 1991. 20 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.