Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1991, Blaðsíða 16

Skinfaxi - 01.08.1991, Blaðsíða 16
V l Ð T A L Um gildi íþrótta í samfélagi nú- tímans - eru þær á villigötum? Þórólf Þórlindsson, prófessor I félagsvisindum, þekkja margir. Hann er Eskfirðingur, hefur brennandi áhuga á íþróttum og sést ekki á hlaupum öðruvísi en merktur gamla félaginu sínu, UÍA, Ungmenna- og íþróttasam- bandi Austurlands. Þórólfur hefur um tíu ára skeið fengist við rannsóknir á gildi íþrótta í nútíma- samfélagi. Hafa íþróttir uppeldislegt gildi? Er knattspyman í hættu vegna þess að leikmenn ganga eins langt og þeir geta og brjóta reglurjafnvel þó þeir taki þá áhættu að meiða andstæðinginn? Eru sjónarmið atvinnumanna farin að marka hrjúf og djúp spor í knattspyrnu ungra leikmanna? Hér á síðunum ræðir Þórólfur Þórlinds- son um þessi mál og önnur eins og það hvort þátttaka unglinga í íþróttum hafi fyrirbyggjandi áhrif á neyslu ávana- og fíkniefna og hvort íslenskir þjálfarar séu nægilega vel menntaðir. Hann telur það lykilatriði að böm og unglingar fái að kynnast sem flestum greinum íþrótta, m.a. vegna þess að þá geta þau sem full- orðnir einstaklingar valið greinar eftir getu og áhuga. íþróttir hafa margþætt hlutverk Hver eru hlutverk íþrótta og hvaða gildi hafa þœrfyrir okkur? „Eitt elsta hlutverk íþrótta er skemmtigildið. Menn hafa frá ómuna- tíð stundað ýmiss konar leiki sér til skemmtunar fyrst og fremst. Áður tengdust íþróttimar hemaði einnig mjög mikið, en það má líka sjá þess merki ef við förum langt aftur í tímann, jafnvel til Grikkja, að íþróttir höfðu gildi í sjálfu sér. Menn dáðu ákveðna leikni í íþróttum eins og menn dáðu leikni á ýmsum öðrunt sviðum. Þá tengdust íþróttir ýmsum öðrum gildum, t.d. heiðri manna og þeim eiginleikum sem við tengjum við persónu einstaklings- ins. Grikkir dáðu líkamsrækt sem sér- stakt fyrirbæri, þannig að í uppruna sín- um má segja að íþróttir séu margþættar. Það er ekki fyrr en urn rniðja nítjándu öld sem menn fóru að gefa gaum að uppeldislegu gildi íþrótta að einhverju marki. Menn töldu að uppeldislegt gildi íþrótta fælist í því að þær mótuðu persónu manna, ýttu undir siðferði- 16 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.