Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1991, Blaðsíða 23

Skinfaxi - 01.08.1991, Blaðsíða 23
VJÐTOL V I Ð K R A K K A Uppáhalds grein: „Spretthlaup.” Uppáhalds íþróttamaður: „Enginn sér- stakur, jú annars það er Carl Lewis.” Framtíðaráform í íþróttunum: „Ég ætla að halda áfram og auðvitað reyna að bæta mig.” Hvernig mætti bæta íþróttalífið? „Að- staðan er góð hér á Egilsstöðum og Helga Alfreðsdóttir er góður þjálfari, en þannig er það örugglega ekki allsstað- ar.” Daði H. Sigurþórsson 12 ára f. 3. febr- úar 1979. Félag: Umf. Snæfell HSH. Hvenær fórst þú að æfa eða keppa í íþróttum? „Þegar ég var 6 ára fór ég að æfa, en var 7 ára þegar ég fór að keppa í fótbolta. Ég byrjaði í frjálsum 10 ára.” Besti árangur: Hástökk 1,55 m, 1. sæti 1.48 m langstökk 4,80 m, 10. sæti 4.36 m 60 m hlaup 8.1 sek, 5. sæti 8.5 sek Uppáhalds greinar: „Hástökk, en körfu- bolti og fótbolti eru lfka í uppáhaldi.” Uppáhalds íþróttamaður: „Einar Ein- arsson.” Framtíðaráform í íþróttum: „Ég held að í framtíðinni leggi ég mesta áherslu á körfubolta eða frjálsar og reyni að kom- ast eins langt og ég get.” Hvernig mætti bæta íþróttalífið? „I Stykkishólmi er góð innanhússaðstaða til að stunda bæði frjálsar og körfubolta. Við höfum bara malarvöll og dreymir um að fá grasvöll sem fyrst.” Eydís Hafþórsdóttir 13 ára f. 15 ágúst 1978. Félag: Umf. Einherji UÍA. Hvenær fórst þú að æfa eða keppa í íþróttum? „Ég fór að taka þátt í frjáls- um í fyrra þegar ég byrjaði að mæta á æfingar hjá Einherja, sem haldnar voru fyrir Sumarhátíð UÍA. Ég hef verið í fótbolta frá því að ég var 11 ára.” Besti árangur: 1. sæti 100 m hlaup 13.2 sek 4. sæti langstökk 4.74 m spjótkast 23.00 m, 6. sæti 21.68 m Uppáhalds grein: „Spretthlaup og lang- stökk.” Uppáhalds íþróttamaður: „Carl Lewis.” Framtíðaráform í íþróttum: „Ég ætla að reyna að halda áfram að æfa og leggja áherslu á spretthlaup og langstökk og auðvitað ætla ég að bæta mig”. Hvernig mætti bæta íþróttalífið? „Á Vopnafirði vantar betri frjálsíþróttaað- stöðu, hlaupabrautir og langstökksað- stöðu, braut og gryfju. Mér finnst líka vanta meiri áhuga hjá félaginu mínu fyr- ir frjálsum íþróttum, það eru margir krakkar sem hafa áhuga fyrir öðrum greinum en fótbolta.” Magnús Másson 14 ára f. 25 mars 1977. Félag: Samhyggð HSK. Hvenær fórst þú að æfa og keppa í íþróttum? „Ég hef verið 7 eða 8 ára þegar ég fór að keppa á móturn í sveit- inni. Ég á lieinta rétt hjá íþróttavellin- um og mér finnst gaman að vera í íþrótt- um. Á sumrin æfi ég frjálsar, en á vet- uma glímu.” Besti árangur: 1. sæti kúluvarp 12.41 m Þriðji besti glímumaður yfir landið í flokki 15 ára og yngri. Uppáhalds grein: „Sniðglíma á lofti”. Uppáhalds íþróttamaður: „Pétur Guð- mundsson og Carl Lewis.” Framtíðaráform {íþróttum: „Ég ætla að reyna að komast sem lengst.” Hvernig mætti bæta íþróttalífið? „Mér finnst að íþróttir ættu að vera meiri leik- ur, ekki eins mikil keppni og var t.d. á meistaramótinu á Akureyri. Menn ættu að hafa meiri skemmtun af þessu.” Benjamín Davíðsson 12 ára f. 12 febrú- ar 1979. Félag: Umf. Vorboðinn UMSE Hvenær fórst þú að æfa og keppa í í- þróttum? „Þegar ég var 8 ára tók ég þátt í Brekkuhlaupinu á Akureyri og varð fyrstur. Og eftir það fór ég að mæta á æfingar hjá UMSE á Akureyri. Núna er ég mest í fótbolta, en hef líka mætt á frjálsíþróttaæfingar.” Besti árangur: 1. sæti 800 m hlaup 2.31,8 mín 9. sæti 60 m hlaup 8.7 sek 9. sæti kúluvarp 8.33 m 1. sæti 4x100 m boðhlaup 56.4 sek, ís- landsmet, sent Fjölnismenn hafa nú slegið, 55,35 sek. Uppáhalds grein: „800 metra hlaup.” Uppáhalds íþróttamaður: „Það er eng- inn í sérstöku uppáhaldi.” Framtíðaráform í íþróttum: „Ég æta að halda áfram í íþróttum, mér finnst þær skemmtilegar og líka gaman að hitta krakkana. Hvernig mætti bæta íþróttalífið? „Ég þarf að keyra um 35 knt til þess að Skinfaxi 23

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.