Skinfaxi - 01.08.1991, Page 15
SKOBUNAÐUR
áttu þér líða vel
SÉRSMÍÐAÐIR SKÓR ÍÞRÓTTASKÓR
BARNASKÓR VARMAHLÍFAR
INNLEGG SPELKUR
s* n
SKÓSTOFAN ÖSSUR ÖSSUR
HVERFISGÖTU 105 • SÍMI: 91-62 63 53 HVERFISGÖTU 105 • SÍMI: 91-62 1460
Verðlaunakeppni
um bestu
íþróttasöguna
Skinfaxi hyggst nú efna til íþróttasögu-
keppni fyrir krakka. Ef þú hefur áhuga á
því að senda blaðinu grein, sestu þá niður
og byrjaðu að skrifa. Þú getur skrifað um
hvaðeina sem þér dettur í hug og tengist
íþróttum. Þemað gæti verið íþróttir og
keppni, íþróttir og leikur eða íþróttir og
víma. Þú mátt skrifa sögu eða grein sem
er þín persónulega reynsla eða um það
sem þér finnst að mætti betur fara í
íþróttunum.
Það er ágætt að miða við að sagan eða
greinin verði að stærð eins og ein vélrituð
síða, en hún má vera lengri.
Verðlaunin eru ekki af verri endanum, því
höfundar þriggja bestu greinanna fá að
launum sjálfvirkar myndavélar frá Hans
Þetersen.
Utanáskriftin er:
Skinfaxi, keppni um bestu íþróttagrein-
ina/söguna
Öldugötu 14
101 Reykjvík
P.s. Ef þú þarft að fá einhverjar upplýsing-
ar um skrifin þá skaltu hringja í síma 91-
12546 og tala við Unu Mæju.
Skinfaxi
15