Skinfaxi - 01.08.1991, Blaðsíða 22
V I Ð T O L V I Ð K R A K K A
Ágúst Freyr Einarsson 12 ára f. 23.
janúar 1979.
Félag: Umf. Fjölnir.
Hvenær fórst þú að æfa eða keppa í
íþróttum? „Fyrsta mótið sem ég tók þátt
í var íslandsmeistaramótið í vetur, en ég
hef nú æft í eitt ár hjá Fjölni.”
Besti árangur:
1. sæti 60 m hlaup 8.0 sek. Vann bikar
fyrir besta afrek mótsins í strákaflokki
og hlaut 1150 stig.
kúluvarp 10,55 m, 1. sæti 9,97 m
1. sæti langstökk 4,91 m
3. sæti spjótkast 34,54 m.
2. sæti 4x100 m boðhlaup 57,5 sek.
Fjölnismenn tóku íslandsmetið af
UMSE á haustmóti ÍR og hlupu á 55,35
sek.
Ágúst er líka íslandsmethafi í 50 m
hlaupi innanhúss, en hann hefur hlaupið
á 6.8 sek.
100 m hlaup 13,0 sek
Uppáhalds greinar: „Sprettir, langstökk
og kúla.”
Uppáhalds íþróttamaður: „Carl Lewis
finnst mér frábær. En af íslenskum
íþróttamönnum finnst mér Einar Vil-
hjálmsson og Einar Einarsson bestir. Eg
held líka mikið upp á Ragnheiði Ólafs-
dóttir, þjálfarann minn.”
Framtíðaráform í íþróttum: „Eg á ekki
von á því að ná jafn góðum árangri á
næsta keppnistímabili vegna þess að
þetta árið hef ég yfirleitt verið höfðinu
hærri en þeir sem ég hef verið að keppa
við. Fyrrverandi Islandsmeistari í þess-
um greinum er sá besti keppinautur sem
ég hefði getað haft og ég ætla að reyna
að halda mig fyrir ofan hann áfram.”
Hvernig mætti bæta íþróttalífið? „Að-
staðan mætti vera betri hér í Fjölnis-
hverfinu, það er t.d. ekki komin nein
langstökksgryfja.
Það er ágætt að æfa í Baldurshaganum,
en Valbjarnarvöllur er orðinn gamall og
slitinn og það þyrfti að laga hann.”
Iða Jónsdóttir 14 ára f. 15 október
1977.
Félag: íþróttafélag Bíldælinga HHF.
„Ég var 10 eða 11 ára þegar ég fór að
æfa frjálsar. Mig langaði alltaf að taka
þátt í héraðsmótum og þessvegna fór ég
að æfa.”
Árangur:
1. sæti hástökk 1,50 m, besti árangur
1,52 m
Uppáhalds grein: „Hástökk að sjálf-
sögðu.”
Uppáhalds íþróttakona: „Þórdís Gísla-
dóttir.”
Framtíðaráform í íþróttunum: „Ég ætla
að halda áfram eins lengi og ég hef á-
huga og getu. Ég ætla einhverntíma að
fara yfir 1,55 m í hástökkinu, en á vet-
urna eru frjálsar mjög lítið æfðar á
Bfldudal.”
Hvernig mætti bæta íþróttalífið? „Betri
velli og aðstoð. Völlurinn á Bíldudal er
sá besti á Vestfjörðum, en hann mætti
bæta, t.d. setja gerviefni á langstökks-
og hástökksatrennu.”
Laufey Skúladóttir 12 ára f. 8. október
1979.
Félag: Umf. Dagsbrún USVH.
Hvenær fórst þú að æfa eða keppa í
íþróttum?
„Ég var 10 ára þegar ég fór að mæta á
æfingar og reyna að vera svolítið virk
íþróttum. Áður hafði ég aðeins kynnst
frjálsum í leikfimistímum og mér
fannst þær skemmtilegar.”
Besti árangur:
1. sæti kúluvarp 8,59 m
5. sæti 60 m hlaup 8.6 sek
„Ég hef ekki lagt neina sérstaka áherslu
á kúluna og á síðasta meistaramóti varð
ég í 8. sæti og kastaði þá 6,90 metra.
Tveim til þrem vikum fyrir þetta mót
tók ég framförum og var farin að kasta
um 8 metra, þannig að ég er mjög
ánægð með úrslitin.”
Uppáhalds grein: „Hlaup eru í miklu
uppáhaldi hjá mér, bæði löng og stutt,
en kúlan færist ofar á vinsældarlistann.”
Uppáhalds íþróttamenn: „Carl Lewis,
Pétur Guðmundsson og Þórdís Gísla-
dóttir.”
Framtíðaráform í íþróttunum: „Ég ætla
að halda áfram að æfa og bæta mig í
sem flestum greinum.”
Elín Rán Björnsdóttir 12 ára f. 24.
febrúar 1979.
Félag: íþrf. Höttur UÍA.
Hvenær fórst þú að æfa eða keppa í
íþróttum?
„Ég var 9 ára þegar ég fór að æfa með
Huginn á Seyðisfirði. Það var þannig
að ég sá að krakkar voru að æfa á
íþróttavellinum og ég spurði hvort ég
niætti ekki vera með. Ég var 10 ára
þegar ég keppti fyrst og fékk þá fyrsta
silfurpeninginn minn fyrir víðavangs-
hlaup.”
Besti árangur:
1. sæti 60 m hlaup 8.5 m, vann bikar
fyrir besta afrek í stúlknaflokki 11-12
ára og hlaut 1050 stig.
3. sæti 800 m hlaup 2.44,0 mín
Kúluv. 7,64 m, 7. sæti kúluv. 7.23 m
22
Skinfaxi