Skinfaxi - 01.08.1991, Side 26
P E L E
hefur þrívegis orðið heimsmeistari.
Hann var í sigurliði Brasilímanna árin
1958, 1962 og 1970. Auk þess varð
hann heimsbikarmeistari með Santos
1962 og 1963. Alls spilaði hann 111
landsleiki og skoraði 96 mörk.
Pelé kom víða við meðan hann dvaldi á
landinu. Hann fór og hitti krakka á Ak-
ureyri, Egilsstöðum, Vestmannaeyjum,
Akranesi og í Reykjavík. Honum var
allsstaðar tekið vel, enda er hann mikið
ljúfmenni og hefur sérstaklega gaman
af því að umgangast börn og unglinga.
Pelé sagði á blaðamannafundi sem KSl
og VISA héldu að sér væri það mikil
ánægja að fá að koma til íslands og
sagði það mjög mikilvægt að hvetja
knattspyrnuunnendur til sýna af sér
háttvísi innan og utan vallar.
Að eignast vini á vellinum
og vera sjálfum sér sam-
kvæmur
„Með því að bera virðingu fyrir and-
stæðingi sínum og spila samkvæmt því
eignast maður vini. Hér á Islandi hef
ég mætt mikilli vináttu og hef mikið að
þakka,” sagði Pelé á fundinum.
Pelé var spurður hvort hann gæti gefið
ungum knattspyrnumönnum einhver
heilræði.
„Ungt fólk lítur upp til afreksfólks og
vill vera eins, en það veit ekki hvað það
er erfitt að ná á toppinn. Mín heilræði
til ungra kanttspyrnumanna eru þau að
það sé best að vera sjálfum sér sam-
kvæmur. Það er ekki gott að bera sig
nákvæmlega saman við ákveðinn af-
reksmann eins og mig. Þið getið aldrei
orðið alveg eins og ég, en með því að
æfa vel, forðast eiturlyf og hegða ykkur
vel inni á knattspyrnuvellinum sem
utan hans getið þið orðið miklu betri en
ég”, voru heilræði þessa mikla knatt-
spyrnusnillings til ungra íslenskra
knattspymumanna.”
Spilum sóknarknatt-
spyrnu
Pelé sagði að knattspyrnan væri ekki
betri í dag, en hún væri heldur ekki
verri. Þó sagðist hann frekar vilja sjá
meira af sóknarknattspymu og sjá fleiri
mörk skoruð en þann varnarleik sem nú
væri mikið leikinn. „Þjóðfélagið hefur
breyst, fólkið er breytt og það er árásar-
gjarnara. Ahorfendur hafa því miður
oft hegðað sér illa á leikjum og það hef-
ur kostað tugi manna lífið, t.d. í
Englandi. Þess vegna er mikilvægt að
knattspyrnumennirnir sjálfir gefi gott
fordæmi, hagi sér vel og hvetji til
góðrar hegðunar.”
Nafnið Pelé
Þegar Pelé var strákur var hann að leika
sér við nokkra stráka og einn þeirra
kallaði hann Pelé. „Eg veit ekki af
hverju, en ég var ekki hrifinn af þessu
nafni. Nafnið festist við mig þó að ég
berðist á móti því. Eg var stoltur af Ed-
son nafninu því Thomas Edison fann
upp rafmagnið og þess vegna vildi ég
halda nafninu, en núna er ég alveg sátt-
ur við þetta gælunafn, Pelé.”
Pelé starfar nú sem sendiherra fyrir Al-
þjóðaknattspyrnusambandið FIFA og
kemur fram fyrir þess hönd til að stuðla
að háttvísi og góðri framkomu knatt-
spyrnuáhugafólks. Nýverið var hann
einnig skipaður sérstakur sendiherra hjá
Sameinuðu þjóðunum í umhverfismál-
um.
Vonandi verður þetta átak VISA og
KSI til þess að franrkoma leikmanna á
leikvellinum batni og gagnkvæm virð-
ing verði í hávegum höfð, jafnt utan
vallar sem innan.
26
Skinfaxi