Skinfaxi - 01.08.1991, Qupperneq 30
F R J Á L S A R í Þ R Ó T T I R
Friðrik alvarlega, enda er hann nú
manna líklegastur til að gera atlögu að
Islandsmeti Erlings Jóhannssonar í 800
m hlaupi. Það yrði einkar ánægjulegt
fyrir HSK, eftir það sem á undan er
gengið. Friðrik sigraði örugglega í 800
mhlaupinu í 1. deildinni og varð annar í
400 m hlaupinu á góðum tíma 48,82
sek.
Bráðefnilegur sprett-
hlaupari Húnvetninga
Eitt almesta efni sem komið hefur fram í
spretthlaupum kvenna undanfarin ár er
Sunna Gestsdóttir, Austur-Húnvetning-
ur. Hún er aðeins 15 ára gömul og setti
í sumar íslandsmet í 200 m hlaupi í 16
ára flokki meyja, hljóp á 25,08 sek. I
keppni 2. deildar mætti Sunna hins veg-
ar ofjarli sínum, hinni kröftugu Guðrúnu
Arnardóttur, en var hins vegar örugg
með annað sætið í 100 m, 200 m og 400
m hlaupum auk þess að sigra í lang-
stökkinu. Sunna er ein af fáum stúlk-
um sem líklegareru til að leysa af hólmi
okkar allra bestu frjálsíþróttakonur, en
ferill þeirra flestra er nú senn á enda.
Sleggjukastarinn úr
Kópavogi
Mesti yfirburðarsigurinn sem vannst í
Bikarkeppninni var sigur Jóns A. Sigur-
jónssonar, UMSK, í sleggjukasti 2.
deildar. Hann kastaði 58,88 m en næsti
maður 27 m skemur. Jón hefur sérhæft
sig í sleggjukastinu og kastað lengst um
62 m og veitt þar með Guðmundi Karls-
syni verðuga keppni í mótum sumarsins.
Jón er bróðir Guðna Sigurjónssonar,
sem keppt hefur mikið í frjálsíþróttum
og reyndar einnig í aflraunamótum.
Ólafur í stöðugri framför í
110 m grindahlaupi
Keppnin í 110 m grindahlaupi karla í I.
deild var mjög spennandi. Ólafur Guð-
mundsson, HSK, sem einkum hefur
stefnt að árangri í langstökki og tug-
þraut undanfarin ár, sýndi að hann er að
verða sterkur grindahlaupari. Hann tap-
aði mjög naumlega fyrir Hirti Gíslasyni,
UMSE, og fékk góðan tíma, 15,20 sek,
í 2,4 m/sek mótvindi. Með sama
áframhaldi er ekki langt að bíða þar til
Ólafur hleypur grindina að jafnaði á
14,70- 14,80 sek.
Þjálfari HSÞ var drjúgur í
stigaöfluninni fyrir sitt lið
Unnar Vilhjálmsson, fyrrverandi ís-
landsmethafi í hástökki, hefur undan-
farin tvö ár þjálfað HSÞ eftir að hafa
verið búsettur á Egilsstöðum unt Iangt
árabil. Hann er greinilega að ná upp
góðu liði, enda munaði litlu að Þingey-
ingarnir færu upp í 1. deild. Unnar lét
ekki sitt eftir liggja í keppninni og var
meðal þriggja efstu í fjórum greinum,
sigraði m.a. í hástökkinu. A Unnari var
að heyra eftir mótið að hann stefndi að
því að æfa vel í vetur með tugþrautina
að markmiði næsta sumar.
Fríða Rún sigraði þrefalt í
lengri hlaupunum á
heimavelli
Fríða Rún Þórðardóttir sigraði í 800 m,
1500 m og 3000 m hlaupi í 2. deildinni
og var því eins og Guðrún Arnardóttir
betri en enginn fyrir UMSK. Tímar
Fríðu Rúnar voru hins vegar lakari en
oft áður, enda byrjaði hún utanhúss-
keppnistímabilið mjög snemma á þessu
ári. Fríða Rún var s.l. vetur við nám og
æfingar í Bandaríkjunum. Hún stór-
bætti árangur sinn og hljóp m.a. 1500 m
á 4:22,9, sem er aðeins um 8 sek. frá Is-
landsmetinu. Það má örugglega spá því
að Fríða Rún geri atlögu að metinu inn-
an 2-3 ára, en sennilega á hún meiri
framtíð fyrir sér í 3000 m hlaupi þar
sem styrkurinn skiptir minna máli en í
styttri vegalengdunum en léttleikinn
Itins vegar meira máli.
Tugþrautarmaðurinn úr
Húnavatnssýslu á mikið
inni
Einn af þeim efnilegu frjálsíþróttamönn-
um sem kontið hafa fram á sjónarsviðið
30
Skinfaxi