Skinfaxi - 01.08.1991, Blaðsíða 38
S I G L I N G A R
Undirbúningur fyrir mót sem þessi er
mikill, bæði hjá keppendum og stjóm-
endum. Áhafnarmeðlimir þurfa að stilla
sína strengi saman, en í sumar voru æf-
ingakeppnir haldnar einu sinni í viku
þar sem þess gafst kostur. Öll handtök í
bátnum þurfa að falla saman. Það er
mikil kúnst að vera á réttum stað þegar
keppnin byrjar og alls 14 bátar eru að
berjast um bestu staðsetninguna.
Fremsti báturinn fær hreinan vind, eins
og kallað er, en þeir aftari fá óhreinan
vind. Fremstu bátar breyta í raun vind-
stefnu þeirra aftari með þeim afleiðing-
um að þeir sem eru aftar geta ekki hald-
ið sömu stefnu og fremri bátarnir. Þeg-
ar komið er að bauju þurfa vendingar að
ganga hratt fyrir sig, sem og uppsetning
á belgseglum, en það getur verið hin
mesta kúnst þegar vel blæs.
Sérstakur bátur flutti keppnisstjórnina,
sem var í höndum Óttars Flrafnkelsson-
ar, Hjördísar B. Andrésdóttur, Baldvins
Björgvinssonar og ísleifs Friðrikssonar.
Þau vom öll um borð í Norninni, svört-
um og tignarlegum bát sem bar nafn sitt
með rentu og var stjórnað af Andrési
Adólfssyni. Mikið mæddi einnig á þeinr
meðan á mótinu stóð. Þau sáu um að
Kjölbáturinn Svalan, Ými UMSK, sigraði á
lslandsamótinu í kjölbátasiglingum.
leggja baujurnar, ræsa keppendur, fylgj-
ast með þjófstarti, taka tímann og reikna
út stig hvers báts eftir hverja umferð
keppninnar og gefa upp stöðuna.
Mjög flóknar reglur gilda í siglingum og
áhöfnin verður að gæta þess að brjóta
ekki á rétti næsta báts. Engin kærumál
Úrslit íslandsmót í kjölbátasiglingum
1. Svalan Félag Ymir Samband UMSK Refsistig 5,7
2. Pia Ymir UMSK 24
3. Dögun Brokey ÍBR 26,7
4. Sigurborg Ymir UMSK 32
5. Saga Ymir UMSK 36,4
6. Sæstjarnan Ýmir UMSK 36,7
7. Skýjaborg Brokey ÍBR 41,4
8. Flóin Brokey IBR 42,7
9. Mardöll Vogur UMSK 47
10. Funi Brokey ÍBR 52
11. Andrá Brokey ÍBR 52,7
12. Albatross Brokey ÍBR 64,7
13. Stína Borkey ÍBR 73
14. Borg Brokey ÍBR 84
komu upp nú í ár og er það mál manna
að góður vindur hafi haft sitt að segja og
haft róandi áhrif á menn. Urslit mótsins
réðust ekki fyrr en í síðustu keppninni,
sjá töflu.
Þá fékk sá bátur sérstök verðlaun sem
oftast konr fyrstur í mark og eins og oft
áður varð Sigurborgin hlutskörpust.
Þær reglur sem notaðar eru í siglinga-
keppnum hér á landi eru keppnisfyrir-
mæli Siglingasambands íslands og regl-
ur Alþjóða siglingasambandsins. Að-
eins einn siglingaskóli er starfandi í
landinu, Siglingaskólinn í Reykjavík.
Á 20. Landsmóti UMFÍ síðastliðið sum-
ar sendu þrjú sambönd keppendur í sigl-
ingar, það voru UMSK, HSK og UFA.
Víða um land er aðstaða til siglinga á
kjölbátum eða kænum góð. í Skaga-
firði, stutt frá Sauðárkrók, væri t.d. hægt
að sigla á kænum beint upp í fjöru og
ekki nauðsynlegt að ráðast í kostnaðar-
samar bryggjuframkvæmdir. Víða urn
land er hafnaraðstaða einnig mjög góð
fyrir kjölbáta. Þó nokkuð framboð er af
bátum í iandinu, en algengasta kaupverð
kjölbáta er á bilinu 500 þúsund til 2,5
milljónir króna, en kaupverð á kænum
er á bilinu 50-150 þúsund krónur.
Siglingasambandið, siglingaklúbbar og
félög geta gefið upplýsingar um sigling-
ar og veitt aðstoð og leiðsögn ef með
þarf.
Sœstjarnan, Ými UMSK.
38