Skinfaxi - 01.12.1992, Qupperneq 10
Sundið verður alltaf
númereitt
-segir Birkir R. Gunnarsson bronsverðlaunahafi með meiru
Á sundmóti í Sundhöll Reykjavíkur nýlega. Birkir er fjœr ú myndinni.
„Ég er farinn að æfa affullum
krafti aftur ogernú kominn í
mitt fyrra form. Ég stefni á þátt-
töku í Norðurlandameistaramót-
inu á næsta ári og stefni að því
að keppa með ófötluðum, " sagði
Birkir R. Gunnarsson. Hann var
einn þeirra íslensku sundmanna,
sem komst á verðlaunapall á
ólympíumóti fatlaðra i Barce-
lona, þar sem hann tók brons-
verðlaun i400 metra skriðsundi,
en Birkir er blindur.
Eftir strangar æfingar og átökin
þar tók hann sér smáhvíld frá
sundinu, en er nú kominn á fullan
skrið aftur.
Birkir er 15 ára. Hann byrjaði að æfa
sund 1986 og hefur stundað það síðan.
Nú æfir hann á tveim stöðum, í Sund-
höll Reykjavíkur og sundlauginni í
Kópavogi. Kristín Guðmundsdóttir
þjálfar hann í Sundhöllinni, en Brynjólf-
ur Björnsson þjálfar hópinn sem hann
æfir með í Kópavogi. Birkir keppir fyrir
UMSK.
„Mér var eiginlega ýtt út í þetta til
að byrja með," sagði hann. „Það voru
foreldrar mínir sem hvöttu mig til þess
að fara að æfa. Svo fór mér að ganga
vel og þá kom áhuginn samhliða. Þetta
átti sér þó talsverðan aðdraganda og ég
fór ekki að æfa af neinni alvöru fyrr en
fyrir tveim árum.
Ég fór að keppa á litlum mótum fijót-
lega eftir að ég fór að æfa og svo rak
þetta hvað annað. Það var svo í fyrra
sem ég fór að æfa með UMSK og hef
bætt mig mjög mikið síðan. Þar er ströng
þjálfun, góður félagsskapur og mikil
keppni. Þetta hjálpast allt að til að gera
árangurinn betri. Ég hef miklu meira
samband við sundhópinn minn heldur
en bekkinn, sem ég er í í skólanum. Flest-
ir í bekknum eru farnir að drekka og
reykja og það fer ekki saman við íþrótta-
iðkun. Ég sæki því meiri félagsskap í hóp
sundliðsins.
Það er hörkukeppni á æfingunum, því
maður vill ekki gefast upp og tapa fyrir
einhverjum strákum sem synda með
manni. Það er hörkupressa á æfingunum
í Kópavogi, því ef maður syndir of hægt,
þá er maður bara syntur niður."
AUtíeinuá
verðlaunapalli
Birkir hefur keppt á fjölmörgum sund-
mótum fyrir fatlaða. „Þar mokar maður
náttúrlega inn verðlaununum, því þar
eru svo fáir. Ég held að ég eigi um 90
peninga. Svo hef ég tvisvar náð verð-
launum í boðsundssveit á íslandsmóti
/0
Skinfaxi