Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1992, Blaðsíða 16

Skinfaxi - 01.12.1992, Blaðsíða 16
61. þing Iþróttasambands Islands: Afreksmannastef na efst á baugi Samþykkt afreksmannastefnu bar einna hœst á nýafstöðnu þingi ÍSÍ. Stofnun afreksíþróttasjóðs og fulltrúa- fjöldi á íþróttaþingi voru þau mál, sem vöktu hvað mesta umræðu á 61. þingi ÍSÍ, sem haldið var í Ráðhúsi Reykjavík- ur 24. og 25. október sl. Rúmlega 260 fulltrúar áttu rétt til setu á þinginu að þessu sinni. Ellert B Schram varkjörinn forseti til næstu tveggja ára. Þinghald gekk vei og snurðulaust fyr- ir sig. Talsverðar umræður urðu um ýmis mál og tillögur, svo sem vera ber. Tiilaga framkvæmdastjórnar um skrán- ingu félagsmanna og iðkenda kallaði til dæmis á allmiklar umræður. Að þeim loknum var hún samþykkt með smá- vægilegum breytingum. Samkvæmt henni skulu héraðssambönd greiða ár- lega skatt til ÍSÍ fyrir hvern félagsmann i6 ára og eldri samkvæmt félagatali síð- astliðins starfsárs. Þá var samþykkt að hver fulltrúi á íþróttaþingi hafi fleiri iðkendur að baki séren áður. Eftir breytinguna má héraðs- samband senda einn fulltrúa fyrir hverja 600 félagsmenn, í stað 300 áður. Verði 150 atkvæði afgangs, má kjósa einn full- trúa fyrir þá tölu. A freksíþróttasjóður Miklar umræður urðu einnig um aðra tillögu framkvæmdanefndar, sem fól í sér að afreksmannastefna yrði samþykkt og drög Iögð að stofnun afreksíþrótta- sjóðs. Greindi mönnum nokkuð á um hvort verja skyldi óskiptum hluta lottó- hagnaðar til afreksíþrótta, eða ekki. Svo fór að tillagan var samþykkt með yfir- gnæfandi meirihluta atkvæða. Sam- kvæmt henni skal framkvæmdastjórn vinna að stofnun afreksíþróttasjóðs og skal ÍSÍ leggja árlega fram 8 prósent af óskiptum lottóhagnaði til afreksíþrótta í stað 3ja prósenta áður. Samkvæmt fjár- hagsáætlun fyrir næsta ár renna þá um 12 milljónir króna í sjóðinn. Einnig var samþykkt að fela fram- kvæmdastjórn ÍSÍ að koma upp íþrótta- minjasafni í Iþróttamiðstöðinni í Laug- ardal á næsta kjörtímabili. Breyting var samþykkt á lögum um stofnun sérsambanda og tillögu um stofnun íshokkísambands var vísað til framkvæmdastjórnar. 16 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.