Skinfaxi - 01.12.1992, Blaðsíða 24
Skíðafélag Dalvíkur:
Mikil uppbygging
-og almennur áhugi á skíðaíþróttinni
Nokkrir ungir og vaskir skídakappar á Dalvík.
Mikil uppbygging hefur átt sér stað
á skíðasvæði Dalvíkinga að undan-
förnu. Það er Skíðafélag Dalvíkur, sem
á heiðurinn af henni. Félagið er aðili að
Ungmennasambandi Eyjafjarðar og
skráðir félagar í því eru rúmlega 250
talsins.
Skinfaxi sló á þráðinn til Jóhanns
Bjarnasonar formanns félagsins til að
grennslast fyrir um starf þess svo og þá
stórbættu aðstöðu, sem það getur nú
boðið skíðafólki upp á.
„Við hófum uppbyggingu svæðisins í
fyrrahaust og höfum verið að byggja
það upp síðan. Nú eru hér tvær lyftur,
en það er raunar lengra síðan að þeim
var komið upp. Samanlagt eru þær um
1200 metrar. Nýlega keyptum við svo
SG-einingahús, og er grunnflötur þess
um 180 fermetrar. Það er á tveim hæðum
ogerefri hæðin litlu minni en sú neðri.
Efri hæðina ætlum við að nota undir
gistingu. Þar má gera ráð fyrir um 40
svefnpokaplássum, auk þess sem við er-
um með tvö herbergi með fimrn rúm-
um.“
Á neðri hæð hússins er salur, snyrting,
cldhús og önnur aðstaða fyrir skíðafólk.
Skálinn er svo að segja tilbúinn, en
útilokað er að gera sér grein fyrir nýt-
ingu hans með hliðsjón af aðsókn að
svæðinu síðastliðinn vetur. Það kom
nefnilega tæpast snjókorn úr lofti allan
veturinn, þannig að lítið fór fyrir skíða-
iðkun á svæðinu.
„Ég á von á nýtingin á húsinu verði
góð í framtíðinni,“ sagði Jóhann. „Við
erum yfirleitt með eitt bikarmót hérna á
ári í einhverjum flokknum. Þar kemur
nýi skálinn alveg örugglega að góðum
notum. Það gætu verið um 100 manns
sem sækja til dæmis mót fyrir 13-14 ára
og þá veitir ekki af góðri gistiaðstöðu.
Þá ætlum við einnig að senda bréf í skóla
og auglýsa staðinn. Það hafa komið
hingað heilu bekkirnir, en við höfum
ekki getað boðið upp á gistingu, þannig
að þarna er orðin þörf breyting á. Áður
höfðum við ekkert nema skúrana sem
fylgja lyftunum, svo að það er eiginlega
hægt að tala um byltingu.
Áður var það þannig, þegar ekki var
hægt að þjálfa vegna veðurs, að þá urðu
—r-
/ snjóleysinu var gripið til þess ráðs af fara með snjótroðara á þau svœði, þar sem
menn gátu rennt sér.
24
Skinfa.vi