Skinfaxi - 01.12.1992, Síða 28
Körfuknattleikur:
Snæfell í uppsveiflu
Snæfell hefur staðið sig vel í
körfuboltanum það sem afer
tímabilinu. Er skemmst að minn-
ast sigursins yfir Val, sem vannst
með 74:72. Það var Bárður Ey-
þórsson, sem skoraði sigurkörf-
una í þeim leik.
Raunar var útlitið ekkert sérstak-
lega gott hjá Snæfellingum í vor.
Þá urðu þeir að leika aukaleik
um áframhaldandi veru sína í
úrvalsdeildinni. En þeir unnu
þann leik og hafa síðan sannað
að þeir áttu fullt erindi i deildina.
„Liðið hefur verið í uppsveiflu," sagði
Bergur Hjaltalín formaður Ungmenna-
félagsins Snæfells í Stykkishólmi, þegar
Skinfaxi sló á þráðinn til hans. „Þeir
byrjuðu á að vinna Tindastól, síðan
Hauka og loks Breiðablik. Þetta voru
allt baráttuleikir, en þeir náðu að vinna.
HlK>ðkerti
hussms
HITACHI
Frá leik Snœfells og Vals aó Hlíðarenda.
ÍJR & StíART
Bankastræti 6. Sími 18600
Allir leikir liðsins í haust hafa verið bar-
áttuleikir, og því hörkuspennandi.“
Nýrþjálfari
Við fengum Kristin Einarsson frá
Njarðvík í liðið. Svo kom nýr þjálfari,
Ivar Ásgrímsson, frá Haukum. Loks
fengum við útlendinginn okkar aftur,
Tim Harvey. Þetta er þriðja árið hans í
liðinu. Liðið er góð og sterk heild og
virðist ná vel saman.
Það virðast vera minni sveiflur hjá lið-
inu, heldur en var. Áður tapaði það
stundum stórt, en leikur jafnar og betur
núna. Nú virðist vera meiri styrkur yfir
því, þannig að það detti ekki niður í ein-
hverjar lægðir. í fyrra náðu Njarðvíking-
ar að vinna þá stórt og svo KR-ingar
með 50 stiga mun. Þess ber þó að geta
að ÍBK vann þá með talsverðum mun
núna og það kom satt að segja á óvart,
því þeir virðast vera ákveðnir í að halda
fengnum hlut, piltarnir."
ora
Skínfaxí
28
Skinfaxi