Skinfaxi - 01.12.1992, Page 30
Næsta ár verður ungbændaráðstefnan
haldin í Noregi.
Ungmennaskipti
„Hvað varðar ungmennaskiptin, þá
bjóðum við upp á að íslensk ungmenni
geti farið til Svíþjóðar eða Finnlands og
dvalið þar í þrjá mánuði," sagði Sæ-
mundur. „Dvölin sjálf er þeim að kostn-
aðarlausu, en þau verða að greiða sjálf
farið fram og til baka. Þau geta valið
um að eyða öllum tímanum hjá einni
fjölskyldu, eða skipta honum milli 2ja
eða 3ja staða.
Tvö undanfarin ár hafa komið sænsk
ungmenni hingað til lands í slíkum skipt-
um. Það gekk mjög vel og var skemmti-
legt í alla staði."
Þess má svo að lokum geta, að á
næsta ári verður haldin svokölluð
markmiðsráðstefna hér á landi á vegum
UMFÍ.
Þingfullírúar í móttöku hjá Forseta Jslands, frú Vigdísi Finnbogadóttur.
Ungmennafélagið íslendingur:
„Sveinn sálugi“ á sviðið
Þann 7. nóvember síðastliðinn var
mikið um að vera hjá Ungmennafélaginu
íslendingi. Þá rann upp sú stóra stund
að frumsýnt yrði leikritið „Sagan um
Svein sáluga Sveinsson í Spjör og sam-
sveitunga hans,“ eftir Önnu Kristínu
Kristjánsdóttur og Unni Guttormsdótt-
ur.
Verkið er gamanleikur, þar sem sveita-
rómantíkin blómstrar í tali og söng.
Tónlistin og textarnir eru eftir Árna
Hjartarson.
Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson, en
ellefu leikarar taka þátt í uppfærslunni,
auk tveggja hljóðfæraleikara og annars
starfsfólks. Leikendur eru úr Skorradal
og Andakílshreppi. Verkið hefur áður
verið sýnt hjá Hugleik í Reykjavík.
Úr sýningu Ungmennafélagsins íslendings á „Sveini sáluga. “
30
Skinfaxi