Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1994, Blaðsíða 6

Skinfaxi - 01.08.1994, Blaðsíða 6
Þegar miðaldra menn urðu ungir í annað sinn Frá setningarathöfn landsmótsins að Laugarvatni. Það var sannarlega ljúf stemning sem ríkti á landsmótinu á Laugarvatni í júlí sl. Þrátt fyrir að veðurguðirnir hefðu getað verið vinveittari, þá létu viðstaddir það ekkert á sig fá, en nutu þess að vera saman á þessum fallega stað þá daga sem mótið stóð yfir. Mikil þátttaka var að venju í keppnis- og sýningargreinum og á kvöldin var boð- ið upp á margháttuð skemmtiatriði, sem voru sniðin fyrir alla fjölskylduna. Þetta var gott landsmót, sem skilur eft- ir góðar minningar, eða eins og hann Jóhannes í Syðra-Langholti orðaði það: „Þarna urðu miðaldra menn ungir í annað sinn.“ Hvað vilja menn hafa það betra? Óvænt fjölgun Mótið hófst á fimmtudaginn 14. júlí með keppni í knattspyrnu, blaki, lýð- veldishlaupi og skák. Þegar leikar stóðu sem hæst varð skyndilega mikil og óvænt fjölgun á svæðinu. Þar voru komnir stórir flokkar herskárra mýflugna, sem hugðu sér gott til glóð- arinnar í nánu samneyti við landsmóts- gesti. En forráðamenn mótsins höfðu séð fyrir þessu eins og öðru, því fáan- leg voru flugnanet í sjoppum á svæð- inu. Það þarf ekki að fara mörgum orð- um um söluna. Á föstudag var keppni fram haldið í hinum ýmsu greinum. Fara úrslit og umfjöllun góðra manna hér á eftir og verður því ekki farið nánar út í þá sálma. Eftir hádegið var hinn nýi og glæsi- legi íþróttavöllur á svæðinu vígður. At- höfnin hófst með því að Þórir Haralds- son, formaður landsmótsnefndar, á- varpaði gesti og bauð þá velkomna. Þá tók til máls Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra og loks flutti sr. Sigrún Óskarsdóttir bæn og blessaði völlinn. Að aflokinni vígslu vallarins afhenti Þórir Jónsson formaður UMFÍ Laug- dælingum reit með áletruðum steini og trjágróðri umhverfis, til minningar um 21. landsmót UMFÍ. Steinninn er skreyttur merki UMFI og landsmóts- merkinu og á hann er letrað eftirfar- andi: „Ungmennafélag íslands óskar skól- unum að Laugarvatni og Laugvetning- um til hamingju með glæsilegan íþróttaleikvang. Þökkum fyrir góða að- stöðu og veitta aðstoð við 21. landsmót UMFÍ 14.-17. júlí 1994. Ungmennafélag Islands.“ Klukkan átta að kvöldi föstudagsins var landsmótið svo formlega sett við hátíðlega athöfn Þórir Jónsson, for- maður UMFÍ, setti mótið og síðan af- henti Kristján Sveinbjörnsson formað- ur landsmótsnefndar 1990 Þóri Har- aldssyni formanni landsmótsnefndar 1994 landsmótsfánann. Ávörp fluttu forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, Ólafur G. Einarsson menntamálaráð- herra, Össur Skaiphéðinsson umhverf- isráðherra, Þórir Þorgeirsson á Laugar- vatni, sem var heiðursgestur lands- mótsins og Þórdís Gísladóttir frjáls- íþróttakona, sem talaði fyrir hönd íþróttafólks. Að því búnu fóru fram sýningar í glímu, axlatökum og fim- leikum. Heldur var veður hryssingslegt meðan á athöfninni stóð, í fyrstu kaldi og undir lokin svolítil úrkoma. Um kvöldið áttu gestir þess kost að bregða sér á ball, annað hvort á Borg í Grímsnesi eða í hinu rúmgóða sam- komutjaldi sem reist hafði verið á mótsstaðnum. Sögðu kunnugir, að það hefði verið „þéttingsfjör“ á báðum stöðum. Morgunstund Á laugardagsmorguninn fengu morgunhressir eitthvað við sitt hæfi, því þeir gátu tekið þátt í morgunleik- fimi með Magnúsi Scheving. Þolfimi- meistarinn vinsæli var svo á svæðinu þann dag og á sunnudag og efndi til ýmissa uppákoma og leikja, sem nutu mikilla vinsælda. Síðan rak hver keppnisgreinin aðra fram eftir degi. Máttu áhorfendur hafa 6 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.