Skinfaxi - 01.08.1994, Blaðsíða 17
Guðmundur Smári Ólafsson skrifar um úrslit í júdó:
Margar afbragðs glímur
í júdó mættu keppendur frá
fjórum aðildarfélögum, HSK,
HSH, UMFG og UMFK. Meðal
keppenda voru margir bestu
júdómenn landsins, margir nú-
verandi og fyrrverandi Islands-
meistarar, auk Norðurlandameist-
arans Sigurðar Bergmann úr
UMFG. Eftir að greinarstjórinn
hafði sett mótið, tók keppnisstjór-
inn, Kristján Hjelm, við stjórn
þess og fórst honum það með af-
brigðum vel úr hendi.
í léttasta flokknum -70.1 kg voru
margir ungir og efnilegir keppendur,
sem voru ákveðnir í að sigra gömlu
refina, þá Gunnar Jóhannesson og
Hilmar Björnsson. En reynslan vegur
jafnan þungt þegar menn glíma og
þannig fór að Gunnar sigraði, en Hilm-
ar varð í 2. sæti.
Mikil barátta
í -78 kg flokki var mikil barátta.
Fjórir keppendur ætluðu sér gullið og
ekkert annað. Elsti júdókeppandinn,
Jóhannes Haraldsson, nýtti reynslu
sína til hins ítrasta en úthaldsskortur
varð honum einna helst að falli gegn
sér mun yngri mönnum. Jóhannes
hafnaði að lokum í 4. sæti, sem verður
að teljast viðunandi, því flokkurinn er
firna sterkur. Sigurvegari flokksins,
Bergur Pálsson, HSK, sigraði allar sín-
ar glímur, sem voru miklar baráttu-
glímur, enda studdur vel af heima-
mönnum.
Dómaraúrskurður
í +78 kg flokki voru Suðurnesja-
mennirnir sterku, Sigurður Bergmann
og Magnús Hauksson, í nokkrum sér-
flokki. Úrslitaglíma þeirra var
æsispennandi og kom það nokkuð á ó-
vart þar sem Sigurður er núverandi Is-
lands- og Norðurlandameistari í yfir-
þungavigt, en Magnús, sem er marg-
faldur íslandsmeistari, hefur lítið keppt
undanfarin ár. Eftir að þessir firnsterku
Stig keppenda í júdó komu félögum þeirra ekki til góða, þar sem ekki reyndist vera þdtt-
takafrá nœgilega mörgumfélögum.
menn höfðu glímt í fullar fimm mínút-
ur af miklum krafti, hafði hvorugum
tekist að skora. Því kom til dómaraúr-
skurðar og dæmdu dómarar Sigurði
einróma sigur.
Þáttur dómara var mjög stór í þessu
móti eins og jafnan í íþróttakeppni.
Þeir dæmdu af miklu öryggi og er Ijóst
að dómaranefnd ÍSÍ er að gera góða
hluti undir stjórn hins kunna júdó-
kappa, Sigurðar Kr. Jóhannssonar.
Hnökralaust mót
Mótið tókst í alla staði með ágætum
og gekk hnökralaust fyrir sig. HSK
sigraði heildarstigakeppnina og er það
í fyrsta sinn sem HSK vinnur júdó-
keppnina á landsmóti, en sigurvegari
undanfarinna landsmóta, UMFG, varð
í 2. sæti.
Það urðu keppendum hins vegar
mikil vonbrigði þegar í ljós kom, að
þau stig sem þeir höfðu aflað komu fé-
lögum þeirra ekki til góða. Þar komu
til reglur sem kveða á um að keppend-
ur skuli vera frá fimm félögum til að
stig teljist gild. Þessar reglur samræm-
ast varla hinum sanna ungmenna-
félagsanda sem jafnan ríkir á lands-
mótum.
Skinfaxi
17