Skinfaxi - 01.08.1994, Blaðsíða 8
Frjálsar íþróttir
- á landsmóti UMFÍ1994
Sunna Gestsdóttir, USAH, gerði góðaferð á landsmótið. Hér tekur hún á móti verðlaunum
fyrir langstökkið, ásamt Sigríði Önnu Guðjónsdóttur, HSK, og Hafdísi B. Rafnsdóttur,
ÍJMSE.
Undirritaður féllst á að fjalla um
frjálsíþróttakeppni landsmótsins þó
ekki gæfist tækifæri að fylgjast náið
með henni. Vona ég að aðstandendur
þessarar höfuðgreinar ungmennafé-
lagshreyfingarinnar taki viljann fyrir
verkið.
Frjálsíþróttakeppni 21. landsmóts
UMFI var mun jafnari en í Mosfells-
bæ. Breiddin hefur aukist og nokkur
héraðssambönd eru að byggja upp
efnileg framtíðarlið. Sérstaklega hefur
staðan batnað hjá Kjalnesingum og
Borgfirðingum. Austur - Húnvetning-
ar, Skagfirðingar, Eyfirðingar og Þing-
eyingar eru með harðsnúin lið. Gömul
veldi eins og Snæfellingar og Austfirð-
ingar virðast á tímamótum og vantar
mikið að þau nái fyrri styrk. Skarphéð-
insmenn bera höfuð og herðar yfir
önnur sambönd og sigur þeirra á mót-
inu var aldrei í hættu. Hart var barist í
hverri grein og fáir höfðu afgerandi yf-
irburði. Minna varð um það en oft áður
að gamlar stjörnur kveddu sér hljóðs á
ný eftir hlé og skákuðu yngra fólki.
Skýringin er einfaldlega sú að þjálfun-
in er orðin mun markvissari en áður.
Þeir sem einungis æfa yfir sumartím-
ann eiga ekki möguleika á að verða
framarlega á landsmótum.
Karlar
Keppendur frá UMSK unnu þrefalt í
100 m hlaupi. Er það í fyrsta skifti í
sögu landsmótanna að einstaklingar frá
sama sambandinu raða sér í þrjú fyrstu
sætin. Athyglisvert er að enginn HSK-
maður komst í úrslitahlaupið, en
Skarphéðinsmenn hafa oft unnið þessa
grein. Hörður Gunnarsson vann nú 100
m hlaupið í annað sinn á landsmóti.
Hann vann einnig í Mosfellsbæ en
keppti þá undir merkjum HSH.
Egill Eiðsson keppti nú á landsmóti
í fimmta sinn. Hann var fyrst með
1978 en missti af mótinu í Mosfellsbæ.
Þá tók hann hliðarskref út úr ung-
mennafélagshreyfingunni og keppti
fyrir KR. Egill er mikilvægur hlekkur í
UMSK- liðinu en hann er nú þjálfari
þess. Eftir mótið á Laugarvatni hampar
hann 16 verðlaunapeningum frá lands-
mótum UMFÍ. Hann vann 400 m
hlaupið í þriðja sinn og hljóp í fjórða
sinn undir 50 sek á landsmóti. Það hef-
ur enginn hlaupari leikið áður.
Friðrik Larsen sem varð fyrstur
HSK- manna til að vinna 800 m hlaup
á landsmóti vann bæði 400 m og 800
m í Mosfellsbæ. Hann var nú fjarri
góðu gamni vegna atvinnu sinnar. En
segja má að handbragð hans hafi sett
sinn svip á landsmótið á Laugarvatni.
Það var fyrirtæki hans, Brosbolir, sem
framleiddi landsmótsbolina.
Tvöfalt hjá Þingeyingum
Þingeyskir hlauparar unnu nú í ann-
að sinn tvöfalt í 800 m hlaupi. í fyrra
skiptið voru það Þorkell Aðalsteinsson
og Hallur Jósepsson sem komu fyrstir
að marki á Hvanneyri 1943. Þá varð
Reynir Kjartansson reyndar fjórði. Þeir
félagar Sigurbjörn og Hákon komu
víða við og skiluðu í stigasafnið níu
stigum hvor. Leika þeir sama leikinn í
Borgarnesi eftir þrjú ár? Athyglisvert
er að enginn þeirra sem voru í sex
fyrstu sætunum í Mosfellsbæ voru með
nú. Þriðji maður í 800 m hlaupinu,
Sveinn Margeirsson, er mesta von ís-
lands í millivegalengdarhlaupum. Vart
er lengur hægt að tala um hann sem
efnilegan, því hann er kominn í
fremstu röð aðeins 16 ára gamall. Þá er
árangur bróður hans, Bjöms, einnig at-
hyglisverður en hann er árinu yngri.
Signtar H. Gunnarsson fetaði í fót-
spor Jóns Diðrikssonar og Brynjólfs
Hilmarssonar og vann bæði 1500 og
5000 m hlaupin. Skagfirðingurinn ungi
fylgdi honum fast eftir í 1500 m, en
Olympíufarinn á skíðum, Rögnvaldur
B. Ingþórsson, var sem skugginn í
lengra hlaupinu. Sigurvegarinn frá því
í Mosfellsbæ, Gunnlaugur Skúlason,
varð að gera sér þriðja sætið að góðu.
Þegar rennt er yfir úrslit landsmót-
anna kemur í ljós að Borgfirðingar
hafa oftast unnið 5000 m hlaupið eða
fimm sinnum, en hlauparar frá UMSE,
UNÞ, UÍA og HSK hafa tvívegis unnið
það.
8
Skinfaxi