Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1994, Blaðsíða 15

Skinfaxi - 01.08.1994, Blaðsíða 15
A miklu meira inni „Ég veit að ég á miklu meira inni. Ég stefni að meti og er alveg harður á því,“ sagði Vésteinn Hafsteinsson, HSK, þegar Skinfaxi ræddi við hann. Vésteinn setti landsmótsmet, kastaði kringlunni 63 metra og vann besta af- rek karla á mótinu. Hann tók sig svo til á Meistaramóti fslands í frjálsum íþróttum skömmu síðar, kastaði 62,34 og setti meistaramótsmet. Vésteinn hefur verið undir talsverðri pressu í sumar, því áhorfendur hafa beðið eftir nýju íslandsmeti og ekki farið dult með það. „Mér finnst það ágætt,“ sagði hann. „Maður á að nota pressuna á jákvæðan hátt. Ef maður notar hana neikvætt, þá fer allt í mínus, sérstaklega í greinum eins og kringlu, sem byggir á mikilli tækni. Ég er mjög ánægður með að hafa sett meistarmótsmet nú og lands- mótsmet á landsmótinu, þannig að ég er bara alsæll. Nú vantar bara Islands- metið. En það kemur.“ Vésteinn sagðist vera fæddur og uppalinn í ungmennafélagshreyfing- unni. „Ég er mikill ungmennafélagi í mér og stefni á að vera áfram í hreyf- ingunni og vinna í henni eftir að ég hætti keppni.“ Öflugt tilboð -Hefur það aldrei freistað þín að ganga til liðs við önnur félög? Hafa þau ekki farið á fjörurnar við þig? „Jú, ég hef fengið það öflugasta til- boð sem um getur í íslenskri íþrótta- sögu, alla vega á frjálsíþróttasviðinu, frá einu Reykjavíkurfélaganna. Ég hafnaði því eingöngu vegna þess að ég er alinn upp í ungmennafélagshreyf- ingunni og lét peningamálin ekki ráða ferðinni. Þetta hefði tryggt mér rniklu betri fjárhagslega afkomu, en ég bý við nú. En ég sagði: nei takk, því andinn er á réttum stað! Ég hef fengið það mik- inn stuðning frá foreldrum mínum og fjölskyldu, HSK og Umf. Selfoss í gegnum árin, að ég tel það ekki þess virði að falla fyrir peningunum. Það er - segir Vésteinn Hafsteinsson ,,Islandsmetið kemur,“ segir Vésteinn Haf- steinsson. framtíð eftir kringluna og ef ég sný baki við öllum þeim sem hafa stutt mig í gegnum árin, þá skil ég ósköp vel að það fólk vilji ekki fá mig til baka ef ég vil til dæmis verða þjálfari. Ég kann að meta þann stuðning sem fólk hefur veitt mér í gegnunt árin. Hlutirnir ger- ast ekki að sjálfu sér í þessu tilliti frek- ar en öðru.“ Vésteinn sagðist stöðugt vera að bæta sig, þótt hann sé að verða 34 ára, eins og hann orðar það. „Meðaltalið í ár er mitt besta fyrr og síðar. Eins og þetta stendur núna, þá lítur það vel út. Ég hef verið í 62-64 metrum að undan- förnu. Ef maður er alltaf þar, þá kemur að 67-68 einhvem tíma á góðum degi þegar aðstæður eru góðar. A æfingu nýlega kastaði ég fimm köst yfir 67. Það þýðir að ég á að geta það á móti og ég er alveg staðráðinn í að gera það.“ Vésteinn hefur þegar gert áætlun fyrir næstu tvö árin, fram að Olympíu- leikunum í Atlanta. „Ég ætla ekki að gefa neinar yfirlýsingar lengra fram í tímann. Ég stefni á næstu tvö árin og hef trú á að það verði mín bestu ár. ‘ ‘ Enginn barlómur „Ég er ekki einn þeirra sem barma mér yfir bágri stöðu frjálsra íþrótta. I dag standa málin ekki eins illa og margir vilja vera að láta. Þau standa illa í Reykjavík, því ÍR og KR, stór- veldin frá því í gamla daga, eru tiltölu- lega dauð félög. Mér finnst það vera í verkahring Frjálsíþróttasambandsins að gera eitthvað í því máli. En mitt fé- lag, og fleiri, hafa aldrei verið betri. Áætlunin FRÍ 2000 er rnjög jákvætt spor. Þetta er í fyrsta skipti sem slík á- ætlun er sett fram og fólk þarf að gefa henni tækifæri til að sjá hvort hún gengur ekki upp. Eg held að hér sé nóg af fólki sem náð getur árangri á alþjóða mæli- kvarða. Hér eru einnig margir ungir og efnilegir þjálfarar. En það eru kyn- slóðaskipti framundan. Kastararnir hafa staðið sig best á alþjóðlegum inót- um. Ég er ekkert frá því að það komi afreksmenn upp í einhverjum öðrum greinum núna. Ég get nefnt Jón Amar, sem hefur alla burði til þess að skipa sér í röð þeirra albestu í heiminum. Ég vona bara að hann geri það.“ Vésteinn sagðist vilja nefna hve ungmennafélagshreyfingin stæði vel að fjöldaþátttöku á ýmsum sviðum. „Andinn á landsmótum UMFÍ er allt annar en á öðrum slíkum mótum því þarna koma allir ungmennafélagar sem vettlingi geta valdið. Hreyfingin heldur uppi frjálsíþróttastarfseminni úti á landsbyggðinni. Það er víða góður byr, svo sem á HSK- svæðinu, í Borg- amesi og hjá fleiri samböndum. Þannig að þetta er til og verður til, -þrátt fyrir breytt þjóðfélag. ‘ ‘ Skinfaxi 15

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.