Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1994, Blaðsíða 12

Skinfaxi - 01.08.1994, Blaðsíða 12
Þórdís Gísladóttir: Keppt í hávaðaroki „Ég var nokkuð sátt við árangur minn á landsmótinu. Þar hafði ég tvo sigra, í hástökki og grind. En veðrið brást og það setti strik í reikninginn. Engu að síður var gaman á landsmót- inu og aðstaðan frábær. Ég stefndi að því að vera í topp- formi í kringum mótið. Þegar við stukkum á fimmtudeginum, þá lentum við í því, að það var hávaðarok. Auð- vitað varð maður svolítið súr, því það var vitað mál, að það breytir atrennu, skreflengd og öllu að vera með níu vindstig í bakið. í hlaupunum fengum við svo rokið á móti, þannig að ekki voru tímarnir glæsilegir þann daginn. En svo lægði, sem betur fer.“ Þetta sagði Þórdís Gísladóttir, HSK, sem vann besta afrek kvenna á lands- mótinu, stökk 1,80 í hástökki. Þórdís sagði að hún hafi ekki fengið nógu mörg tækifæri til að keppa í sum- ar. „Ég er í þeirri aðstöðu að ég fæ ekki nógu mikla keppni hér heima. Mér fannst því sumarið líða alltof fljótt. Ég keppti einungis tvisvar er- lendis og það er of lítið. Eftir sumarið er ég ánægðust með árangurinn í Evrópubikarkeppninni á írlandi. Þar stökk ég 1,83 og hafnaði í 2. sæti, sem var besti árangur konu í Skinfaxi Ert þú áskrifandi? Það getur þú gerst í síma 91-682929 Þórdís segist vera ánœgðust með árangur- inn í Evrópubikarkeppninni eftir sumarið. landsliðinu í þessari keppni. Þetta var persónulegur sigur fyrir mig, því mér gekk illa í byrjun. Ég varð að berjast í gegnum þetta og gefa ekki eftir, en staðan var sú að ég hefði getað lent í 5. sæti. Þetta var mín 10. Evrópukeppni, þannig að þetta var nokkuð minnis- stætt. í 8 skipti af 10 hef ég hafnað í fyrstu þrem sætunum og mér fannst mikilvægt að koma svona ofarlega út úrþessari keppni nú.“ Þórdís sagðist stefna að því að æfa í vetur og brenna sig ekki aftur á því að keppa of lítið. Draumahæðin sé 1,90 sem sé árangur á heimsmælikvarða. „Þá gæti ég skilið mjög sátt við þetta.“ Bjart framundan Þórdís sagði, að bjart væri fram undan í frjálsum íþróttum. Hún sagði, að faglega væri unnið í Frjálsíþrótta- sambandinu, landsliðsþjálfari hefði markað stefnu þess, FRÍ 2000. Væri FRI eina sambandið sem sett hefði fram slíka afreksstefnu. Þá væri það eina sambandið sem væri búið að gefa skýrslu til Ólympíunefndar vegna Ólympíuleikanna 1996. „En það sem háir okkur frjáls- íþróttamönnum er að við eigum enga boðlega innanhússaðstöðu. Við verð- um að fara að átta okkur á því að frjálsíþróttir eru líka innanhússíþróttir. Þegar ég vaknaði í rigningunni á lands- mótinu, þá hugsaði ég hvort ekki væri tími til kominn að við færum að sætta okkur við að þetta eru líka innanhúss- íþróttir. En við höfum ekkert innan- hússtímabil hér hvað keppni varðar. Við höfum bara meistaramótið, þar sem við þurfum að hlaupa á milli bæj- arhluta til að keppa, sem aftur þýðir að við fáum enga áhorfendur til að hlaupa út um allan bæ. Það væri enginn vandi að fylla húsnæði eins og Laugardals- höll af áhorfendum á llottu innanhúss- móti, þar sem kepptu bestu íþrótta- mennirnir í frjálsum íþróttum. Þá þyrftu mótshaldarar ekki að hafa á- hyggjur af fjárhagnum og veðrinu. Varðandi frammistöðuna á stórmót- um erlendis vil ég benda á, að bara með því að ná lágmarki á þessum mót- um sýnir viðkomandi að hann er þegar búinn að ná tilteknum árangri. Þetta er ekki íslenskt lágmark, heldur alþjóð- legt lágmark, sem reiknað er út frá heimsgetu hverju sinni. Með því að ná því er maður kannski búinn að vinna hundrað manns. Það fólk, sem við erum að keppa við, býr við allt aðrar aðstæður en við, hvað varðar fjárhags- legan stuðning og aðstöðu. En kröfurn- ar eru þvílfkar, að halda því fram að við getum verið meðal tíu efstu í hverri grein! Við sjáum boltamennina okkar ekki í úrslitum á Ólympíuleikum eða Evr- ópumeistaramótum. íslenskt afreksfólk í frjálsum íþróttum er flest að nálgast eldri kantinn. Þegar það hættir kemur stórt gat. Þá verður farið að klappa fyr- ir árangri, sem ekki er einu sinni skrif- að um í dag. Og þá verður örugglega farið að skrifa um að sú hafi nú tíðin verið, að við höfum átt frjálsíþróttafólk á Ólympíuleikum og Evrópumótum!“ 12 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.