Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1994, Blaðsíða 19

Skinfaxi - 01.08.1994, Blaðsíða 19
Eiríkur Ágústsson: Mikil körfuboltaveisla Það var allt lagt undir í úrslitunum í körfunni, enda voru viðkomandi lið búin að standa ým- islegt afsér til að ná svo langt, svo sem hörku forkeppni. Það kom fljótlega í ljós þegar undir- búningur fyrir körfuboltakeppnina vegna landsmótsins hófst, að þetta mót yrði með talsvert öðru sniði en fyrri landsmót. Það sem helst ber að nefna er að fjöldi liða sem skráðu sig var meiri en nokkru sinni fyrr. Einnig var af flestum talið að fleiri sterk lið væru í þessum hóp en áður. I upphafi skráðu 18 lið sig til keppni og þá var einsýnt að eitthvað þyrfti að gera til að fækka þeim, því á sjálfu landsmótinu yrði útilokað að koma öll- um þeim leikjum fyrir sem þyrfti, ef öll þessi lið mættu. Því var ákveðið að hafa forkeppni þar sem átta efstu liðin kæmust í úrslitakeppnina á sjálfu landsmótinu. Niðurstaðan úr þessari forkeppni varð sú, að úrvalsdeildarliðin og 1. deildarliðin sem mættu til leiks komust öll áfram, en riðlaskipunin varð hins vegar að mati margra nokkuð athyglis- verð þar sem Suðurnesjaliðin lentu öll saman í riðli ásamt Snæfelli. En riðl- arnir í úrslitakeppninni urðu sem hér segir: A-riðill B-riðill UMSB UMFN UÍA UMFG UMSS UMFK UMSK HSH í A-riðli var talið að baráttan yrði milli UMSB og UMSS. Fentu þessi lið saman í fyrsta leik og var þar um hreint ótrúlega spennu að ræða. En lokatölumar urðu 99:100 fyrir UMSB. Hjá UMSS skoraði Ómar Sigmarsson 37 stig, en hjá liði UMSB voru þeir stigahæstir Ari Gunnarsson með 23 stig og Henning Henningsson með 22 stig. Eftir þennan leik var leið UMSB nokkuð létt í úrslitaleikinn og hjá UMSS í leikinn um 3. sætið. UMSK sigraði síðan UÍA 79:69 í viðureign þessara liða og lék því lið UMSK um 5. sætið, en UÍA var úr leik, þar sem ekki var spilað um 7.-8. sætið. Oft mjótt á mununum í B-riðlinum var talið að slagurinn stæði milli Grindavíkur, Njarðvíkinga og Keflvíkinga og Snæfell var til alls líklegt. Keflvíkingar voru með unga og spræka stráka, en þeir eldri og reyndari mættu ekki. Það sem háði þessu liði var, að þeir voru yfirleitt ekki nema 6- 7 á leikskýrslu og lentu því í miklum villuvandræðum og þurftu því að ljúka leikjum með ekki fullskipað lið inni á vellinum. Það er skemmst frá að segja að úrslitaleikurinn í þessum riðli var á milli UMFG og UMFN. Þessi leikur endaði með sigri UMFG 115:104 og var hann jafnari en þessar tölur gefa til kynna. Stigahæstir í þessum leik voru Jóhannes Kristbjörnsson, UMFN, með 46 stig, Marel Guðlaugsson, UMFG, með 24 stig, Hjörtur Harðarson, UMFG, með 23 stig og Valur Ingi- mundarson, UMFN, með 23 stig. Leik- urinn um neðri sætin í þessum riðli var því milli HSH og UMFK. Var þetta hörkuleikur og lokatölur hans 103:100 fyrir UMFK. HSH kærði leikinn og var þeim dæmdur sigur í honum. HSH lék því um 5.-6. sætið, en UMFK var úr leik. Urslitaleikurinn um 5,- 6. sætið var því milli UMSK og HSH. Endaði hann með sigri HSH 80:74. Leikurinn um 3.-4. sætið var milli UMFN og UMSS. Lauk honum með sigri UMFN, en lokastigin urðu 101:91. Úrslitaleikurinn var svo milli UMFG og UMSB. Var þar um hörku- leik að ræða. Grindvíkingar leiddu mest allan tímann, en þó var oft mjótt á mununum. Endaði leikurinn með sigri þeirra og urðu lokatölurnar UMFG 83 stig, UMSB 77 stig. Grindvíkingar urðu því landsmótsmeistarar og Borg- nesingar í 2. sæti. Stigahæstu leikmenn úrslitaleiksins urðu: Hjörtur Harðar- son, UMFG, 25 stig, Alexander Ermonlinski, UMSB, 25 stig, Ari Gunnarsson, UMSB, 23 stig og Pétur Guðmundsson, UMFG, 19 stig. Lokaröð liða á landsmótinu á Laug- arvatni varð því þessi: 1. UMFG 2. UMSB 3. UMFN 4. UMSS 5. HSH 6. UMSK 7.-8. UÍA 7.-8. UMFK Það má segja að lokum að ekkert hafi komið sérstaklega á óvart nema þá helst útkoma liðs Keflavíkur sem lenti í 7.-8 sæti. Að sjálfsögðu bar keppnin þess augljóslega merki að hún var á miðju sumri og liðin því ekki í sama formi og meðan á íslandsmótinu stend- ur. Einnig vantaði ýmsa lykilmenn í flest liðin. Samt má segja að keppnin hafi staðið vel fyrir sínu og áhorfendur fengið heilmikla körfuboltaveislu á stuttum tíma. Skinfaxi 19

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.