Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1994, Blaðsíða 20

Skinfaxi - 01.08.1994, Blaðsíða 20
„Kvennakeppnin nú var ekki svipur hjá sjón miðað við landsmótið í Mosfellsbœ, “ segir Einar m.a. Einar Sigurðsson skrifar um úrslit í knattspyrnu: HSB var lið keppninnar Knattspyrna á landsmóti var að þessu sinni fjörleg, mörg mörk skoruð og óvænt úrslit litu dagsins ljós bæði í karla- og kvennakeppninni. Það setur þó svip á knattspymukeppnina á lands- mótinu að íslandsmótið í knattspyrnu stendur sem hæst og sum sambandanna sjá sér ekki fært að senda sitt besta lið á landsmótið. Knattspyrnusamband ís- lands hefur ekki viljað taka tillit í nið- urröðun sinni til landsmótanna hvorki nú né á fyrri landsmótum. Þennan þátt verða aðildarfélögin að vinna innan KSI til að knattspyrna á landsmóti nái þeim sess sem hún á skilið. Unnu verðskuldað Njarðvíkingar unnu nokkuð óvænt- an en verðskuldaðan sigur á Keflvík- ingum í úrslitaleik í karlakeppninni. Sigur Njarðvíkinga var sigur liðsheild- arinnar, en þeir tefldu fram sama liði og þeir hafa teflt fram í fjórðudeildar- keppninni í sumar, en Keflvíkingar voru með sambland af leikmönnum sem leika í 1. deild og með 2. flokki. Þessi samblanda Keflvíkinga gekk ekki upp gegn sterkri liðsheild Njarð- víkinga. I leik um 3. sæti sigraði ungt lið UMSK fjörlegt lið HSB, en UMSK tefldi fram flokki UBK. Þessi tilhögun UMSK fellur að hugmynd sumra að keppnislið í knattspyrnu miðist við leikmenn í 2. flokki en ekki í meistara- flokki. Þessari hugmynd hefur oft ver- ið haldið á lofti, en knattspyrnukeppni á landsmótum er oft ekki svipur hjá sjón miðað við að í öðrum íþrótta- greinum er leitast við að tefla fram því allra besta sem samböndin eiga. í leik um 5. sætið sigraði lið HSH lið UÍÓ í vítaspyrnukeppni eftir að jafnt hafði verið í venjulegum leiktíma. Eins og fyrr segir var karlakeppnin ofl á tíðum fjörleg og mikið skorað af mörkum. Njarðvíkingar gerðu vel í því að sigra keppnina, en lið keppninnar verður samt að teljast stórskemmtilegt lið HSB sem lét leikgleðina ráða í leikjunum og gerði að meðaltali fimm mörk í leik. Fyrirmyndarlið sem skemmti með fjörlegum leikjum. Ekki svipur hjá sjón Kvennakeppnin nú var ekki svipur hjá sjón miðað við landsmótið í Mos- fellsbæ. Sömu helgi var sett á heil um- ferð í 1. deild og því var til dæmis lið UMSK mestmegins skipað kornungum stúlkum og var því fall þess mikið frá síðasta móti. Þá mætti lið USÚ ekki til leiks, en því var spáð góðu gengi á mótinu. Stór plús Lið UIA sigraði örugglega í kvenna- keppninni, en það var að mestu skipað leikmönnum í Hetti. Höttur leikur sem kunnugt er í 1. deild og átti leik í deild- inni á laugardeginum, en fékk honum frestað án vandræða. UIA fær stóran plús fyrir þessa ráðstöfun. UMSS hreppti 2. sætið, UMSK það 3. og HSH það 4. Að lokum skal þess getið að margir af þeim dómurum sem störfuðu á mót- inu dæma í efstu deildum íslandsmóts- ins og er þar þáttur Suðurnesjamanna stór. Það má því segja að knattspyrnu- keppnin hafi farið vel og löglega fram. 20 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.