Skinfaxi - 01.08.1994, Side 7
sig alla við, ef þeir ætluðu að fylgjast
vel með, því keppt var á mörgum stöð-
um í senn. Þá var efnt til fjölskyldu-
skemmtunar í samkomutjaldinu urn
miðjan daginn, þar sem fluttir voru
leikþættir, boðið var upp á tónlist af
ýmsu tagi og fleira var til gamans gert.
Var sú skemmtun vel sótt af börnum
og fullorðnum.
Og svo var komið að kvöldvökunni,
sem haldin var í nýja íþróttahúsinu.
Hún hófst með því að Lúðrasveit Þor-
lákshafnar lék og kór 150 barna söng
íslensk lög við góðar undirtektir áheyr-
enda. Þá kynnti Ungmennafélagið Axl-
arbjörn nýstárlegar íþróttagreinar, sem
vöktu mikla kæti meðal viðstaddra.
Stjarnan í Garðabæ sýndi fimleika og
Sigga Beinteins söng. Þá sýndu átta
pör þjóðdansa, en þau höfðu sýnt á
landsmótinu 1965. Hafsteinn Þorvalds-
son stjórnaði sýningunni og þóttu pörin
sýna að þau höfðu engu gleymt á þess-
um 30 árum, sem liðin voru milli
landsmótssýninga.
Síðan mætti Magnús Scheving aftur
til leiks og sýndi listir sínar. Hann not-
aði tækifærið og hvatti viðstadda til að
lifa lífinu án áfengis og það er áreiðan-
legt að þau orð hafa fallið í frjóan jarð-
veg, svo vinsæll sem Magnús er.
Kvöldvakan heppnaðist í alla staði
mjög vel og mátti svo sannarlega sjá
að viðstaddir skemmtu sér af hjartans
lyst.
Eftir kvöldvökuna voru dansleikir á
Borg í Grímsnesi og í samkomutjald-
inu góða. Á síðarnefnda staðnum léku
hinir einu og sönnu Hljómar og víst er
um það að víða mátti sjá angurvær
andlit þegar þeir tóku gömlu, góðu lög-
in.
Á sunnudagsmorgun var einnig efnt
til morgunleikfimi með Magnús í far-
arbroddi og þar á eftir var helgistund.
Síðan var keppni fram haldið, þar til
mótinu var slitið síðdegis. Um kvöldið
var svo lokaball, eins konar punktur
fyrir aftan gott mót.
Umh verfisþátturinn
Ekki er hægt að ljúka þessari urn-
fjöllun án þess að minnast á stóran þátt
mótshaldsins, sem var umhverfismálin.
Er þetta í fyrsta sinn, sem sá mála-
flokkur hefur skipað svo stóran sess á
landsmóti UMFÍ.
Á Laugarvatnsvöllum var stórt tjald,
Hún sat á hjólbörum, vafin inn í teppi, og
beið eftir að afhenda forseta Islands blóm.
þar sem heitt var á könnunni og fólk
frá Landgræðslunni var með tilsögn
fyrir þá sem litu við. Á svæðinu voru
síðan stungin niður rofabörð, sáð gras-
fræi og trjáplöntum plantað. Einnig
voru settar niður trjáplöntur hjá þjón-
ustumiðstöðinni á Laugarvatni. Áust-
firðingar lögðu svo sannarlega sitt af
mörkum, því þeir gáfu eina trjáplöntu á
hvern keppanda.
Sérstaklega ber að geta góðrar fram-
kvæmdar á sorphirðu á svæðinu, því
rar sást varla bréfsnifsi hvað þá annað
þá daga sem inótið stóð yfir. Lögð var
áhersla á að flokka það sorp sem til
féll. Skolpið var flutt inn á Haukadals-
heiði, þar sem það var herfað niður.
Á mótinu var dreift bæklingi frá
umhverfisráðuneytinu, þar sem fjallað
var urn útblástur og mengun frá bílum.
Þá var auglýst að mótið væri reyklaust.
Af ofangreindu er ljóst að ung-
mennafélagshreyfingin fylgist ekki
einungis með nýju áherslum í um-
hverfismálum í þjóðfélaginu, heldur er
hún í fararbroddi hvað þennan mála-
flokk varðar.
Fjölskyldan í fyrirrúmi
Mikil áhersla var lögð á ijölskyldu-
þáttinn á landsmótinu. Má þar nefna
fjölskyldubúðirnar, ýmislegt fyrir
börnin, svo sem leiktæki og hestaleigu,
samveru fjölskyldunnar í morgunleik-
fimi og helgistund, lýðveldishlaupið og
svo frv. Leiklistinni var skipað í háan
sess á mótinu og ber þar að nefna Uti-
leikhúsið af Austurlandi sem skemmti
mótsgestum.
Á mótinu var nokkuð um nýjungar í
sýningar- og keppnisgreinum. Þar var
m.a. keppt í stafsetningu, sem er nýj-
ung og framlag ungmennafélagshreyf-
ingarinnar til varðveislu íslenskrar
tungu. Þá voru hestaíþróttir teknar inn
sem sýningargrein, en þær njóta mik-
illa vinsælda nú meðal bama, unglinga
og fullorðinna. Svona mætti áfram
telja, en hér verður látið staðar numið.
Hvítbláinn og íslenski lýðveldisfáninn blöktu við Itún.
Skinfaxi
7