Skinfaxi - 01.08.1994, Síða 11
Tómas Grétar Gunnarsson, HSK, vann hástökkið. í 2. sœti varð Urinar Vilhjálmsson, HSÞ,
síðan Theodór Karlsson, Sigfús Jónsson og Þórarinn Hannesson, allir úr UMSS.
hlaupastíl og á eftir að láta mikið að
sér kveða á komandi árum.
Það vakti athygli mína að sama var
uppi á teningnum og hjá körlunum að
engar stúlkur frá HSK eða HSÞ voru í
úrslitahlaupinu. Það telst aftur á móti
til tíðinda að borgfirsk stúlka var nú
meðal þeirra bestu í fyrsta sinn síðan
1981 en þá varð Svafa Grönfeldt sjö-
unda.
Annar norðlenskur sigur
Snjólaug Vilhelmsdóttir varð önnur
í 100 m hlaupinu en kom fyrst í mark í
400 m hlaupinu. Guðlaug Ósk Hall-
dórsdóttir kom næst henni í báðum
greinum. Fjölþrautarkonan Þuríður
Ingvarsdóttir var í verðlaunasætum í
400 m, 800 m og grindahlaupinu.
Valdís Hallgrímsdóttir er enn að.
Hún skaut mörgum yngri stelpum aftur
fyrir sig þó hún sé komin á fertugsald-
urinn.
Þórdís Gísladóttir vann grindahlaup-
ið eftir mikla baráttu við Sunnu og
Þuríði. Voru þær þrjár í sérflokki en
meðvindur var of mikill.
Fríða Rún Þórðardóttir hafði yfir-
burði í 800 m, 1500 og 3000 m hlaup-
um. Setti hún landsmótsmet í tveimur
síðastnefndu greinunum og varð stiga-
hæst kvenna í frjálsum íþróttum.
Fyrstu verðlaun Fjölnis
Guðrún Bára Skúladóttir og Laufey
Stefánsdóttir háðu harða baráttu. Lauf-
ey vann til fyrstu verðlauna sem Ung-
mennafélagið Fjölnir í Grafarvogi hlýt-
ur í þessari grein á landsmóti UMFÍ.
Hólmfríður Asa Guðmundsdóttir tók
við hlutverki Margrétar Brynjólfsdótt-
ur sem fulltrúi UMSB á landsmótum.
En Margrét vann lengri hlaupagrein-
arnar í Mosfellsbæ.
í 3000 m hlaupinu vakti athygli
mína 11 ára stelpa. Nafn hennar er Ey-
gerður Inga Hatþórsdóttir og þar virð-
ist mikið hlaupaefni á ferð.
Sveit UMSE vann styttra boðhlaup-
ið af öryggi en mikili barátta var milli
sveita HSK, USAH og UMSK.
Eyfirsku stúlkurnar unnu einnig lengra
boðhlaupið en þar var keppnin aðal-
lega um þriðja sætið millli HSÞ,
USAH, UMSB og UMSK. Hefði verið
gaman að sjá þær allar saman í riðli.
Sunna Gestsdóttir vann langstökkið
eftir harða baráttu við íslandsmet-
hafann í þrístökki sem hlaut einnig
annað sætið í hástökki. Athyglisverð er
breiddin hjá eyfirsku stúlkunum sem
röðuðu sér í þriðja, fjórða og fimmta
sætið. Þórdís Gísladóttir sem vann
langstökkið í Mosfellsbæ var að gera
sér að góðu það sjöunda nú.
Þórdís vann aftur á móti hástökkið
með miklum yfirburðum. Ferill hennar
sem hástökkvara er einstakur og þessi
33 ára afrekskona á vonandi mörg ár
eftir á landsmótum UMFI. Hún hefur
nú unnið hástökkið þrjú landsmót í röð
og ætíð með miklum yfirburðum. Með
afreki sínu vann Þórdís besta afrek
kvenna í frjálsum íþróttum Til fróð-
leiks má geta þess að eina HSK-stúlk-
an sem hefur unnið hástökkið á lands-
mótum fyrir utan Þórdísi er Guðrún
Sigurðardóttir sem vann greinina á Ak-
ureyri 1955.
Skarphéðinsstúlkur unnu hástökkið í
fyrsta sinn þrefalt. Ovenju mörg há-
stökkvaraefni virðast vera að koma
fram á sjónarsviðið og langar mig t.d.
að benda á 13 ára stúlku, Rakel Jens-
dóttur, sem mikið efni í þessari grein.
Skagfirskur sigur
Skagfirðingar eignuðust nú að nýju
sigurvegara í kúluvarpi á landsmóti, en
Oddrún Guðmundsdóttir vann þessa
grein á sama stað 1965. Það var fyrr-
verandi fjölþrautarkonan Berglind
Bjarnadóttir sem stóð uppi sem sigur-
vegari, en HSK- stúlkurnar röðuðu sér
í næstu sætin.
Meðal keppenda í kúluvarpinu var
Erla Oskarsdóttir UNÞ. Rúmlega fer-
tug keppti hún nú í þessari grein í tí-
unda sinn. Erla keppti fyrst á lands-
mótinu á Laugum 1961 og hel'ur verið
á þeim öllum nema í Mosfellsbæ, en
þangað komst hún ekki af óvið-
ráðanlegum ástæðum. Einstakur
keppnisferill!
Guðrún Ingólfsdóttir vann kringlu-
kastið í fimmta sinn á landsmóti, en
hún keppti fyrst á Sauðárkróki 1971.
Hún vann bæði kúluvarp og kringlu-
kast á Akranesi og Selfossi og keppti
aftur í Mosfellsbæ eftir glæsilegan feril
sem KR-ingur. Er hún eina konan sem
hefur látið kringluna svífa yfir 50
metra. Búast má við því að Guðrún fái
harðari keppni á næsta landsmóti.
Hanna Lind Olafsdóttir verður þá á
heimavelli en hún setti nýlega stúlkna-
met og kastaði í fyrsta sinn yfir 40 m í
keppni.
Vigdís Guðjónsdóttir vann spjót-
kastið líkt og frændi hennar Unnar. Er
þetta í fyrsta sinn á landsmóti sem
þrjár kasta yfir 40 metra. Það kemur
berlega í ljós hver er sérgrein héraðs-
þjálfara UMSB, því borgfirsku stúlk-
urnar skipuðu sér framarlega. Búast
má við því að íris Grönfeldt verði með
á næsta landsmóti og verða hún og
stúlkurnar hennar til alls vísar.
Bestu óskir til allra frjálsíþróttaunn-
anda um land allt. Hittumst á 22.
landsmóti UMFÍ í Borgamesi 1997.
Kærar kveðjur
Ingimundur Ingimundarson
Skinfaxi
11