Skinfaxi - 01.08.1994, Page 21
Jón Arnar Magnússon:
Stend frammi
fyrir erfiðu vali
„Ég var ánægður með landsmótið í
heild. Hvað mig snertir, þá hefði mér
mátt ganga betur í stangarstökkinu. Ég
ætlaði að gera svo mikið, en það er
ekki hægt að búast við fullkomnum ár-
angri í öllum greinum.“
Þetta sagði Jón Arnar Magnússon,
UMSS, sem var stigahæstur karla á
landsmótinu. Jón Arnar getur fagnað
góðum árangri eftir sumarið. Hann
setti Islandsmet í langstökki, stökk
slétta 8 metra og setti einnig tugþraut-
armet í maí sl. í Austurríki.
„Ég hef verið í góðu formi í sumar
og sloppið við öll meiri háttar meiðsl,“
sagði hann. „Ég æfði ntjög vel fyrir
Evrópumeistaramótið og hef raunar
æft rnjög vel í allt sumar. Ef ég legði
saman allar mínar æfingar fyrstu 24 ár
ævi minnar, þá væri það samanlagt
ekki eins ntikið og ég er búinn að æfa
núna á 25. árinu. Það var búið að
benda mér á, að færi ég að æfa af
krafti, þá gæti ég náð góðum árangri.
Ég prófaði það og það hefur tekist. Ég
get ekki annað en verið ánægður eftir
þetta tímabil.“
í vetur kennir Jón Arnar á Sauðár-
króki, auk þess sem hann hyggst æfa.
„Nú eru það Olýmpíuleikarnir sem
eru markmiðið, en það er að vefjast
fyrir mér hvort ég eigi að taka lang-
stökkið eða tugþrautina. Ég hefði
hoppað í 3.-4. sæti á Evrópumeistara-
mótinu með þessu stökki og ég held að
þetta sé 2. eða 3. besti árangur á Norð-
urlöndunum í ár. Það er því spurning
hvort maður nær lengra í langstökki
eða tugþraut. En ég ákveð þetta með
sjálfum mér og svo kemur bara í ljós
livað hefur orðið fyrir valinu.“
Jón Arnar sagði það eftirtektarvert
hve umfjöllun um frjálsar íþróttir ætti
undir högg að sækja í fjölmiðlum í
samanburði við sumar aðrar íþrótta-
greinar. „Það voru engin Islandsmet
sett í fótboltanum í Mjólkurbikarnum.
Hann fékk þó fjórar síður meðan við
fenguin hálfa í bikarkeppninni. Ég veit
Jón Amarfagnar góðum árangri eftir sum-
arið.
ekki hvort kenna má forráðamönnum
um þetta, en það hefur vantað alla
kynningu. Nú er þetta dæmi að snúast
við, sem betur fer, og mér finnst hafa
áunnist heilmikið í þessum efnum bara
á þessu ári. Menn þurfa að taka hönd-
um saman og snúa vörn í sókn.“
Á leið til útlanda?
Jón Arnar sagði það koma til greina
að hann héldi lil útlanda innan tíðar og
dveldi þar í einhvern tíma. „Kærastan
mín ætlar jafnvel í nám erlendis. Þá
færi ég með henni og myndi helga mig
æfingum. Við förum til Noregs eða
Svíþjóðar ef af verður. Þar er mun
betri aðstaða heldur en hér, það þarf
ekki að fara lengra. Ég er sannfærður
um að almennileg innanhússaðstaða
hér rnyndi leiða til þess að betri árang-
ur næðist, auk þess sem áhorfendum
myndi stórfjölga.“
Atta þúsund stiga markið er það sem
Jón Arnar keppir að nú. „Ég setti
rnarkið á íslandsmet og það kom. Nú
æfi ég fyrir þetta takmark og finn mér
svo eitthvað annað þegar því er náð.
Ég horfi á skammtímamarkmiðin eftir
að ég fékk skellinn á skautunum „sæll-
ar“ minningar og fótbrotnaði. Þá voru
einhver stór orð í gangi hjá mér, sem
auðvitað gengu ekki eftir. Menn hafa
svoiítið verið að bauna þessu á mig,
þannig að ég hef tekið þá stefnu að
fara hægar og öruggar yfir. ‘ ‘
Ritgerðar-
samkeppnin
Eins og kunnugt efnir Skinfaxi nú til ritgerðarsamkeppni meðal nemenda
í grunnskólum í tilefni 50 ára afmælis íslenska lýðveldisins. Ritgerðirnar
skulu fjalla um efnið: „EUum íslenskt.“ Keppnin fer fram í tveimur aldurs-
flokkum, 12 ára og yngri og 13-16 ára. Skilafrestur er 1. nóvember n.k.
Skemmtileg verðlaun verða í boði l'yrir 3 bestu ritgerðirnar í hvorum ald-
ursflokki.
Skinfaxi
21