Skinfaxi - 01.08.1994, Blaðsíða 23
Dráttarvélaakstur er ein af keppnisgreinum liinna vinsœlu starfsíþrótta.
Sigurvegari í pönnukökubakstrinum
var Olafía Ingólfsdóttir, HSK, sem var
ekki svo mjög óvænt, því hún fór
einnig með sigur af hólmi í þessari
grein á síðasta landsmóti.
Línubeiting er mjög spennandi
keppnisgrein, því sá sem er síðastur að
leggja í balann, getur orðið fyrstur,
þegar upp er staðið. Keppendur þurfa
að leggja 100 öngla ofan í balann og
setja beitu á hvern þeirra. Til þess fá
þeir 110 beitur.
Sá sem er fljótastur fær fullt hús
stiga fyrir tíma, en þeir sem á eftir
koma fá refsistig. Síðan er rakið upp úr
balanum og athugað hvort beitan sitji
vel á. Ef flækjur finnast, þá eru stigin
fljót að fjúka.
Ekki voru margir áhorfendur að
þessari keppnisgrein, og hefðu þeir
gjarnan mátt vera fleiri. En sigurvegari
var Jósteinn Hreiðarsson, HSÞ.
Margþætt keppni
Ekki er hægt að segja að starfs-
hlaupið hafi fengið heppilega staðsetn-
ingu, því keppt var í fótbolta á sama
stað.
Þrautirnar voru mjög misjafnar.
Keppendur þurftu til dæmis að prjóna
og gekk það ekki þrautalaust fyrir sig.
Enn aðrir fengu kústskaft og þurftu
þeir að þeysa á því til Laugarvatns.
Sáust vissulega góð tilþrif hjá sumum
þeirra á sprettinum. Þegar þangað var
komið áttu þeir að teikna mynd af Þóri
Haraldssyni formanni landsmótsnefnd-
ar. Þarna teiknuðu keppendur af hjart-
ans lyst, en ekki sást svipur af Þóri á
neinni myndanna.
Þegar þessari fjölþættu keppni var
lokið stóð Gunnar Þór Sigurðsson,
UMSE, uppi sem sigurvegari.
Freygarður Þorsteinsson skrifar um briddskeppnina:
Spilaö af miklu öryggi
Briddskeppnin á landsmótinu var
einhver stífasta keppnin sem þar fór
fram. Alls tóku 18 sveitir þátt í henni
og spiluðu allir við alla. Leikirnir
voru stuttir, eða aðeins 8 spil, en í
svo stuttum leikjum má ekkert útaf
bera og mistök geta verið dýr. Það
þurfti því mikla einbeitingu allan
tímann til að tryggja góðan árangur.
Keppni hófst á fimmtudegi og lauk
ekki fyrr en um hádegisbil á sunnu-
degi. Þá höfðu sveitirnar spilað 17
umferðir eða alls 136 spil.
Sveit Keflavíkur hafði forystu í
keppninni allan tímann og spilaði af
miklu öryggi. Sveitin tapaði aðeins
fjórum viðureignum, þar af tveimur
með minnsta mun. Fjórum sinnum
hlaut sveitin fullt hús stiga eða 25 og
meðalskor í leik var 19,5 stig, sem
teljast verður mjög gott. Sveitina
skipuðu þeir Einar Jónsson, Heiðar
Agnarsson, Hjálmtýr R. Baldursson,
Jóhannes Sigurðsson, Karl Her-
mannsson og Magnús Torfason.
Sveit UMSB hlaut slæman skell
gegn Keflavík í upphafi keppninnar,
en náði sér síðan vel á strik og var í
2. sæti þegar upp var staðið og hafði
þá haldið því sæti lengst af. Sveitin
tapaði aðeins fjórum viðureignum
eins og sigursveitin. Sveit HSB hlaut
síðan 3. sætið og sveit UMSK varð í
4. sæti. Lokastaðan í briddskeppninni
varð sem hér segir:
1. Keflavík 331 stig
2. UMSB 313 -
3. HSB 306 -
4. UMSK 296 -
i-6. HSK 283 -
i-6. UÍA 283 -
7. USAH 263 -
8. UMSE 258 -
9. HSH 256 -
10. USVH 248 -
11. Umf. Víkverji 241 -
12. USVS 236 -
13. Umf. Geisli 228 -
14. HSÞ 215 -
15. UMSS 213 -
16. Umf. Vesturhlíð 198 -
17. HSS 196 -
18. USÚ 191 -
IESTAURA*
Skinfaxi
23